Leita í fréttum mbl.is

Blakkát

Dauðinn vitjaði mín í nótt

 

en forðaði sér er hann sá til mín.

Helsjúkur hugur minn

hafði gefið mér miða

á fyrsta farrými til helvítis.

Sent mig í endalausa myrkvaða hugarangist

djöfullegs innrætis.

 

Vítislogar bíða rétt handan við hornið

á mínum saurugu grundum

sem aldrei verða slegnar framar.

Það varð ótímabær seinkun á brottför

og eftir stendur samviskan

líkt og nauðgað sjávarþorp

eftir markaðsdrifið kvótakerfi andskotans.

 

Vængjasláttur hamingjunnar er þagnaður.

Það er nótt í sálu minni

hryggð í hjarta

lendur hugans frostnar í hel.

 

Lítill fugl flýgur hratt fyrir stafni

en sveigir skyndilega undan vindi

steypir sér niður að öldutopp

líkt og honum fatist flugið

en þýtur svo snöggt upp og hverfur út í blámann.

 

Angan af söltu brimi og þangi

leggur fyrir vit mín.

Ég geng út götuna meðfram sjávarhömrum

og nem ekki staðar fyrr en í sólsetri eilífðarinnar.

Söngur litla fuglsins heyrist aldrei meir.


mbl.is 18 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Magnaður kveðskapur Nilli. Maður sér þetta í myndum og finnur ilm, heyrir hljóð og nemur vind.  Þú mátt sannarlega gera meira af þessu, þótt mér líki síður beinar pólitískar tilvísanir í svo fallegum prósa.

Jón Steinar Ragnarsson, 13.12.2007 kl. 17:25

2 Smámynd: halkatla

er þetta eftir þig? vá mér fannst þetta flott og ég er ENGIN ljóðamanneskja!

halkatla, 13.12.2007 kl. 19:09

3 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Hmm, takk, takk Jón og Anna. Já Anna, höfundurinn heitir víst Nilli .........Blakkát var samið fyrir átta árum út á rúmsjó er fréttir bárust af svipuðu máli og viðhengd frétt.

Níels A. Ársælsson., 13.12.2007 kl. 19:18

4 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Vissi nú alltaf að þið væruð hagmæltir Tálknfirðingarnir.

Grétar Rögnvarsson, 13.12.2007 kl. 21:00

5 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Já og skáldmæltir Grelli. Takk fyrir innlitið gamli vinur.

Níels A. Ársælsson., 13.12.2007 kl. 21:04

6 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Maður kíkir nú alltaf á þetta kjarnyrta og skemmtilega blogg frá þér Nilli minn.

Grétar Rögnvarsson, 13.12.2007 kl. 21:06

7 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Sömuleiðis skoða ég þína síðu vinur. Þú stendur þig bara þræl vel á blogginu Grelli.

Níels A. Ársælsson., 13.12.2007 kl. 21:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband