Leita í fréttum mbl.is

Hvað með sjávarútvegsmálin ?

Hafa ungir framsóknarmenn ekkert vit á sjávarútvegsmálum eða er búið að rækta sjávarútvegsgenið úr þeim ?

Hvernig stendur á því að ungir framsóknarmenn minnast ekki á sjávarútveginn þegar þeir kalla eftir aðgerðum ríkistjórnarinnar ?

Er það kanski vegna þess að ungir framsóknarmenn skammast sín fyrir kvótakerfið sem er á góðri leið með að rústa vel flestum sjávarbyggðum landsins og tortýma fiskistofnunum ?

Ég kalla hér með eftir áliti ungra framsóknarmanna á fiskveiðistjórnunni og hvað þeim finnst um þær hroðalegu afleiðingar sem kvótakerfi Halldórs Ásgrímssonar og LÍÚ hefur leitt af sér fyrir íslenzka þjóð !


mbl.is Ungir framsóknarmenn kalla eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Þeir fara með veggjum þeir Frammarar sem eru í útveginum. Sennilega eiga ungir ekkert greiða leið að þeim sem sitja á herfangi Sambands og Esso á Hornafirði og Króknum, eru hinir ekki allir fyrir bí?

Nema auðvitað hann nágranni þinn þarna. Kallar hann sig ekki Frammara enn, það er nú búið að duga honum þokkalega?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 12.4.2008 kl. 10:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband