Leita í fréttum mbl.is

Fjármál: Hafnir í vanda / Afleiðingar Verðlagsstofu skiptaverðs, lög nr. 13/1998; sett af Árna Matth vegna hótana LÍÚ

tálknafjörður 049

Mynd naá: Börn að leik í Tálknafjarðarhöfn.

Frétt tekin af skip.is, 21. apríl 2008. 

Fjárhagsvandi flestra hafna á Íslandi er mikill og vaxandi. Þetta kom fram á málstofu samgönguráðs um stefnumótun í samgöngum sem haldin var fyrir helgi. Viðfangsefni fundarins voru samgöngur og byggðaþróun.  

Frá þessu er sagt á vef Siglingastofnunar. Framlag hennar til fundarins var væntanleg skýrsla um fjárhagsvanda hafnasjóða á landsbyggðinni sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands er að vinna fyrir stofnunina. Sveinn Agnarsson, hagfræðingur og aðalhöfundur skýrslunnar, flutti erindi.

Í máli hans kom fram að fjárhagsvandi flestra hafna, annarra en þeirra þriggja stærstu, væri mikill og vaxandi. Rakti hann m.a. rætur fjárhagsvandans, líkleg neikvæð áhrif núverandi hafnalaga eftir fulla gildistöku þeirra 2011 og ræddi hugsanlegar leiðir til úrbóta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband