Leita í fréttum mbl.is

Konungur heimilar stofnun holdsveikraspítala

Anno 10. mai 1651.

Konungur heimilar ađ stofna fjóra holdsveikraspítala, á Hörgslandi í Skaftafellssýslu, Klausturhólum í Árnessýslu, á Hallbjarnareyri á Snćfellsnesi og á Möđrufelli í Eyjafirđi.

Á Íslandi fer fyrst sögum af spítölum áriđ 1308, er “herra Árni byskup (Helgason) ok herra Haukr lögmađur (Erlendsson) séttu lćrđra manna spital i Gaulveria bć i Floa”.

Síđar er greint frá spítölum miklu víđar og á ýmsum tímum, en líklegt er ađ spítalar ţessir hafi annars vegar veriđ félagsmála- og próventustofnanir t.d. fyrir uppgjafapresta, en hins vegar til lćkningar, einangrunar og ađhlynningar fólks međ sjúkdóma á borđ viđ holdsveiki og sárasótt.

Ţetta eru ţví fyrstu lyflćkningadeildir á Íslandi. Spítalajarđir gáfu af sér tekjur, en auk ţess gat komiđ til aukahlutur skips úr einum róđri á ári, fuglatekja, hlutur af hákarlaveiđum, sérstakur steinbítsafli, arfur, ölmusur, jafnvel sektargjöld!

Stundum var látiđ í veđri vaka, ađ spítalahaldarar vćru síst vanhaldnir í störfum sínum. Um ađbúnađ sjúklinga er ţađ hins vegar skemmst ađ segja, ađ spítalarnir voru yfirleitt argvítug óţrifnađarbćli og kannski fyrst og fremst ćtlađir til ađ koma í veg fyrir hvimleitt flakk vanheils fólks.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband