Leita í fréttum mbl.is

Sjávarútvegsráðherra á fullu í kvótabraski

vestfirðingur í félagskap ice-save snillinga

Margt heimskulegt hefur komið frá ráðherra LÍÚ Einari K. Guðfinnssyni síðan hann tók við þeirri auðvirðulegu stöðu.

Nú snýr hann án þess að hika öllum rökum á haus og saltar endanlega með stórri skóflu yfir leiguþræla LÍÚ.

Auknar geymsluheimildir til handa LÍÚ eru einungis til þess fallnar að búa til skort-stöðu fyrir fáa útvalda sem fá aflaheimildirnar gefins úr hendi ráðherra ár hvert á kostnað íslenzku þjóðarinnar.

Rýmri geymsluheimildir stór auka brottkast, tegundasvindl og landanir framhjá hafnarvigt í skjóli nætur og Fiskistofu.

Nú skal passað upp á sem aldrei fyrr að leiguverð á kvóta lækki aldrei heldur einungis hækki.

Ég skora á Samfylkingarfólk að taka stöðu á móti Einari K. Guðfinnssyni og fella hann úr stóli sjávarútvegsráðherra.


mbl.is Mega geyma þriðjung kvótans milli ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

Skort stöðu??? hvað ertu að tala um? Að geyma 33% milli ára skiptir engu fjandans máli í dag. ég er ekki viss um að það verði geymt meir en 1% frá þessu ári fram á það næsta.

Eina skort staðan er að það skortir veiðiheimildir. Það verða annars allir búnir fyrir páska. 

Fannar frá Rifi, 10.11.2008 kl. 15:17

2 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Fannar minn !

Sumir verða búnir með kvótan já, enn ekki allir.

Það verða fáir útvaldir sem eiga að græða á þessum heimskulega gjörning ráðherrans.

Af hverju gefur bjáninn ekki heimild fyrir því að 33% af aflaheimildum skulu ganga til þeirra kvótalausu svo framalega sem þær verða ekki veiddar af handhöfunum ?

Er ekki tími til kominn að menn fari að hugsa áður en sýður endanlega upp úr.

Það er orðinn ansi stuttur í mér þráðurinn og ég er ekki viss um að ég nenni lengur að bíta bara í skjaldarröndina og láta allt yfir mig ganga.

Þetta er komið nóg !

Níels A. Ársælsson., 10.11.2008 kl. 15:42

3 Smámynd: Fannar frá Rifi

útvöldu? Það er ekki leyft að veiða nóg. það er ekki nóg af veiðiheimildum til að halda uppi nægjanlegri atvinnu á þeim bátum sem eru á veiðum fram að sjómannadegi.

Tékkaðu á þessu:

http://www.sax.is/?gluggi=fisktegundir 

Rétt tveir mánuðir eru liðnir af kvótaárinu og það er búið að veiða 17,6%.  Það verður allt búið í apríl. það verður ekki neitt eftir til að geyma á milli ára. allir eru þegar búnir með það sem geymt var síðast. 

Fannar frá Rifi, 10.11.2008 kl. 16:56

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Afar geðþekkur þessi þingmaður þinn Nilli. Hann er hreint ekkert síðri en minn...? Hérna er gullkorn frá þeim snillingi, því það er hann...;

 

  

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 10.11.2008 kl. 17:16

5 Smámynd: Sigurbrandur Jakobsson

Þessir Rifsarar!!!! En hvernig var það fór ekki fyrirtækið hans á hausinn og Bolungarvík nærri því með. Þar fer þá maður með reynslu af hremmingum.

Sigurbrandur Jakobsson, 10.11.2008 kl. 21:30

6 Smámynd: Fannar frá Rifi

http://nilli.blog.is/blog/nilli/entry/687121/

varðandi þessa blogg færslu um vistvænni veiðar. það er útrunninn fresturinn til að skrifa athugasemd. en læt hana flakka hérna:

Ég myndi nú halda að línuveiðar væru vistvænni ásamt því að þær skapa störf fyrir margan gamlingja í að hnýta á öngla. gefur mörgum tækifæri á að halda áfram að taka þátt í lífi og starfi ásamt því að fá eitthvað fyrir sinn snúð. 

Fannar frá Rifi, 10.11.2008 kl. 23:18

7 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Fannar er greinilega útgerðarmaður án vinnu sjálfur?  Hann hefur alltaf snúið út úr mínum "kommentum",,hingað til!...þegar ég benti Fannari á þessa grei til dæmis!

 http://www.dv.is/brennidepill/2008/8/12/saegreifinn-sem-slokkti-ljosid/

...um skaðsemi kvótakerfisins...og nú eru bankarnir eins!??  Er ekki til aur í sjóðum þessarra manna?

Allavega er ég svo sammála þér Níels!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 13.11.2008 kl. 00:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband