Leita í fréttum mbl.is

Helförin var lygi

viti

Þessi frétt slær allt út sem áður hefur verið logið í fjölmiðla á byggðu bóli.

Árlegt brottkast þorsks og ýsu á Íslandsmiðum er ekki undir 50-70 þúsund tonnum !

Aldrei áður hefur jafn miklu magni af þorski og ýsu verið kastað í sjóinn eins og á síðasta ári.

Fiskveiðiárið sem nú er ný hafið mun að öllum líkindum slá út allt það sem menn hafa áður séð í þessum efnum.

Leiða má líkum að því að ef ekki verða breytingar á úthlutuðum heildarafla í þorsk og ýsu mjög fljótlega þá fari brottkastið yfir 100 þúsund tonn í þessum tegundum.

Þessi niðurstaða Hafró um heildarbrottkast á þorski og ýsu er rétt innan við 2% af sannleikanum.

Líkt og Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti heldur því fram að helförin hafi verið lygi reyna forystumenn Hafró og LÍÚ að segja okkur að brottkast í illræmdasta kvótakerfi veraldar sé lygi !


mbl.is 1.935 tonnum af ýsu var hent í hafið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Við sem höfum starfað við sjómennsku vitum að brottkast er innbyggt í öll kvótakerfi. Hlutaskiptakerfið veldur því svo að allir taka þátt og algjör þöggun er tryggð.  Eftirlitsmyndavélar eru hugsanlega svarið ásamt með verulegum sektum og sviptingu veiðileyfa við ítrekuð brot.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 15.10.2009 kl. 09:29

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hvar var þessum 5 tonnm kastað í hafið?

Ég er búinn að marg-reikna þetta fram og aftur og fékk ekki út nema 1930!

Árni Gunnarsson, 15.10.2009 kl. 09:59

3 Smámynd: Sævar Helgason

Er ekki brottkast innbyggt í allar fiskveiðar ?

Ef við tökum einfalt dæmi sem frístundaveiðar.  Menn sækjast eftir góðum matfiskum.  Lýsa er ekki í hávegum höfð- hún fer því aftur í sjóinn . Smáýsa er ekki vinsæl- í sjóinn með hana- sama er með smáþorsk. Oftast á þessi fiskur sér enga lífsvon .

Síðan heimfærum við svipað upp á stórveiðiskipin og ef hlutfallið er það sama - þá er um nokkur tuga þúsund tonna að ræða.

1935 tonn / allan flotann-- hlægilegt - ef málið er ekki grafalvarlegt.

En hvað er til ráða..vandinn er meiri en kvótakerfið eitt og sér þó ömuleg sé..

Sævar Helgason, 15.10.2009 kl. 11:15

4 Smámynd: Þórður Már Jónsson

hahhahahahaha...... Þessi frétt er svo ótrúleg að maður á bara ekki orð! Gaman að fá góðan brandara snemma dags. Heimska Hafró nær nýjum hæðum. MÆLINGAR!!! Hvernig í ósköpunum náðu þeir að MÆLA þetta????? Gerðu þeir kannski sér mælingu handa málgagni LÍÚ (Mogganum)???

Þórður Már Jónsson, 15.10.2009 kl. 15:16

5 Smámynd: Víðir Benediktsson

Gæti trúað því að þessar tölur eigi bara við eina útgerð sem ég þekki til. Hún hendir ekki minna magni á ári hverju en kemur fram í þessari frétt.

Víðir Benediktsson, 17.10.2009 kl. 15:45

6 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Víðir.

Ég tala við áhafnir margra báta víðsvegar á landinu stundum oft í viku.

Ég þekki mjög vel til brottkast um borð í þessum bátum. Sumir þeirra kasta yfir 1000 tonnum á ári bara af þorski svo allri ýsu undir 800 gr.

Þá er ótalið tegundasvindlið og framhjákeyrslunar á vigtinni.

Níels A. Ársælsson., 17.10.2009 kl. 16:40

7 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Heimurinn er skrítinn.Enginn inn á landsfundi smábátaeigenda studdi veiðiráðgjöf Hafró.En þegar fram kom kurteisleg tillaga um að forstjóra Hafró bæri að segja af sér, þá var hún felld.Tillagan verður flutt aftur á næsta ári.

Sigurgeir Jónsson, 18.10.2009 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband