Leita í fréttum mbl.is

Þöggunn LÍÚ og háskólasamfélagsins

gildra

LÍÚ keypti sér opinberan stuðning háskólasamfélagsins til að kenna áfram hvernig á að klúðra fiskveiðistjórninni enn betur. 

LÍÚ svífst einskis – og kaupir opinberan stuðning við allan ósómann í fiskveiðistjórninni: mistökin um uppbyggingu þorskstofnsins, brottkast, framhjálöndun, eignarupptöku fjölskyldna í sjávarbyggðum og eyðingu byggða. 

Man fólk ekki hvernig Fiskvinnsluskólinn og Stýrimannaskólinn á Ísafirði, Dalvík, og Vestmannaeyjum - frábærir skólar voru eyðilagðir og í stað þess er plottað eitthvert samsæri um kennslu í kvótafræðum LÍÚ í Háskólunum á Akureyri og Háskóla Íslands þar sem blóðpeningar og “gjafir” LÍÚ gegna lykilhlutverki – við útbreiðslu fræða – sem eru að eyða bæði þorskstofninum og sjávarbyggðum kring um landið ?

Það var alvarleg siðblinda hjá yfirstjórn háskólanna að taka þátt í  að kenna þennan ósóma - gegn greiðslu blóðpeninga.


mbl.is Verða Kínverjar eða Spánverjar skipstjórar á íslenskum skipum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórður Már Jónsson

Rétt hjá þér. Titillinn segir allt sem segja þarf.

Þórður Már Jónsson, 21.10.2009 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband