Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Björk lýsi yfir stuðningi við vestfirðinga

.....og skori á íslenzk stjórnvöld að þau skili vestfirðingum aftur fiskimiðunum sem þau stálu ! Það eru ekki bara kínversk stjórnvöld sem brjóta mannréttindi !

Það er vel þess virði að upplýsa Björk um allar staðreyndir málsins og gróf mannréttindabrot stjórnvalda á íslenzkum sjómönnum til fjölda ára.


mbl.is Kínverjar herða eftirlit með skemmtikröftum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RMS Lusitania

RMS Lusitania var breskt farþegaskip sem var sjósett 7. júní 1906. Lusitaniu var sökkt í fyrri heimsstyrjöldinni við Írlandsstrendur þann 7. maí 1915 af þýskum kafbáti, U-20. 1198 manns létu lífið og varð þessi atburður til þess að mörg ríki snerust gegn Þjóðverjum.


Breytinga er þörf á landhelgislöggjöfinni

Áður fyrr börðust íslendingar í þorskastríðum við "Tjallanna" til að ná fullum yfirráðum á fiskimiðunum umhverfis landið og höfðu sigur, að við töldum.

Í dag eru það ekki "Tjallarnir" sem eru að ræna fiskimiðin okkar heldur enn verri ógn sem svífst einskins.

Íslenzku frystitogararnir og flottrollskipin eru margfallt meiri ógn við fiskimiðin heldur en allur útlendinga skarinn sem tröllreið miðunum við ísland áratugum saman.

Stjórnvöld verða að bregðast við og reka frystitogaranna og flottrollskipin út fyrir 200 mílur.

Fyrr er fullnaðarsigri íslendinga yfir landhelginni ekki náð.

Vandi sjávarbyggðanna leysist af sjálfum sér með einfaldri reglugerð eða smávægilegri breytingu á landhelgislögum !

Íslandi þúsund ár !


mbl.is Vandi sjávarbyggða ræddur á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það læðist að manni illur grunur

......að G.W.Bush og félagar hyggi á innrás í Venesúela enda heimsmarkaðsverð á olíu komið í 103 $ fatið.

Og ástæðan verður að sjálfsögðu til að vernda mannréttindi og koma Hugo Chaves frá völdum.

 


mbl.is Liðssöfnun í Venesúela beint gegn Bandaríkjamönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eyðibyggðaráðherra

.......og kúguð mella LÍÚ.

Hann sveik líka þjóð sína þessi, enda hafði hann gleymt ætt sinni og uppruna..........


mbl.is Einar Kr.: Ríksvaldið á að beita sér fyrir olíuhreinsistöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nöldur búkalla í konungslausu landi

Er eigi það einsýnt að við fylgjum ráði Þorgils frænda þíns, spurði Þormóður. Enda erum við að landslögum réttdræpir hverjum manni hér á landi.

Við munum fylgja ráði einskins manns, mælti Þorgeir Hávarsson.

Hitt er viturlegt að grípa nú gás meðan gefst; fara utan og leita á öðrum löndum þeirra konunga eða annara sæmilegra höfðingja er þiggja vilja þjónustu af hetjum og skáldum.

 

Er mér orðið helsti leitt að hlýða nöldri búkalla í konungslausu landi.

Heimild; Gerpla.


mbl.is Orðstír Íslands í ólgusjó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband