26.6.2007 | 15:58
Land mitt hrópar
Hróp berst frá landi mínu,
spjóti er lagt í síðu þess.
Börn þjást, tár og blóð
streyma sem regnflóð.
Land mitt hrópar:
Allt of margir
týna lífi.
Við áköllum þig Guð. Hvar ert þú?
Hvert er svar þitt? Við leggjum við hlustir.
Í sársaukanum komum við auga á þinn kross,
skynjum í eymdinni að: þú ert með oss.
Höfundur: Gertrud Wittenberg, (Þýtt A.S.).
![]() |
Lést af slysförum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.6.2007 | 20:29
Morus bassanus
Súlan er sjófugl sem verpir hér við land á örfáum stöðum undan suður-, austur-og norðausturlandi. Kunnasti varpstaðurinn hér við land er eflaust Eldey sem liggur suður af Reykjanesi. Íslenskir fuglafræðingar hafa fylgst vel með stærð súlustofnsins hér við land og telur hann nú um 25.000 pör.
Stærstur hluti íslenska súlustofnsins verpir í Eldey en hún er að öllum líkindum ein stærsta súlubyggð í heimi. Sökum sérstæðs fuglalífs hefur Eldey verið friðuð síðan 1940 en áður var farið árlega út í eyna til eggjatöku.
(Eldey var klifin í fyrsta skipti 1894 og var þar að verki Eldeyjar-Hjalti (Hjalti Jónsson) og tveir aðrir Vestmannaeyingar. Var þetta talin hættuför hin mesta)
Súlan er stór fugl, tæplega metri á lengd og vegur á bilinu 2 til 3 kíló. Vænghaf súlunnar er allt að 180 sentímetrar. Af þessu má ráða að súlan er stærsti sjófuglinn hér við land.
Helsta fæða súlunnar er fiskur. Veiðitækni súlunnar er sérstaklega tilkomumikil og kallast aðfarirnar súlukast. Súlan veiðir á þann hátt að hún stingur sér úr mikilli hæð ofan í sjóinn um leið og hún leggur vængina að síðunni. Hún stingur sér 3 til 6 metra ofan í sjóinn og grípur þar þann fisk sem hún hafði séð úr lofti áður.Varptími súlunnar er í apríl og maí. Hver kvenfugl verpir aðeins einu eggi í hreiðurhraukinn sem fuglinn býr til úr þara og þangi. Unginn verður yfirleitt fleygur upp úr miðjum ágúst og í september. Ungfuglar á fyrsta ári eru grábrúnir að lit með hvítum doppum á baki. Súlan fær fullorðinsham og verður kynþroska á fimmta ári.
Á haustin yfirgefur stærstur hluti stofnsins Íslandsstrendur og flýgur suður að ströndum Evrópu en lítill hluti súlustofnsins dvelur vetrarlangt á miðunum djúpt suður af landinu. Erlendis eru stórar varpstöðvar í Kanada nánar tiltekið við St. Lawrence flóa, víða á Labrador og á Nýfundnalandi. Á eynni St. Kilda á Bretlandseyjum er stærsta súlubyggð í heimi en þar verpa meira en 50.000 pör.
![]() |
Hafsúlan komin í land |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
25.6.2007 | 17:41
Farið að hitna undir hvalavinum

![]() |
Eldur um borð í hvalaskoðunarbáti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.6.2007 | 16:51
Rétt bara forsmekkurinn
Hvað haldið þið að verði þegar þeir fá ekki eina einustu loðnu frá Íslandi, hvorki hroggnafulla í heilu né hrognin í þúsunda tonna tali ?
Nú blasir við hvort sem Þorsteini Má líkar betur eða verr algjört veiðibann á loðnu við Íslands strendur.
Ég á þá við algjört stopp hvort heldur ríkistjórn Íslands skerst í leikinn eður ei.
Því nú mun vera í burðarliðunum stofnun samtaka almennings um verndun lífríkis sjávar til varnar sjávarbyggðum Íslands og munu þau samtök taka málin í sínar hendur, ef ekki með góðu þá með illu og viðeigandi ráðstöfunum.
Að auki legg ég til að Samherja hf, verði eytt og Halldóri Ásgrímssyni stungið í grjótið sem eftir lifir.
![]() |
Japanskir kokkar fara á taugum vegna túnfisks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.6.2007 | 15:57
Síðasti naglinn í líkkistu kvótakerfisins sleginn
Takk elsku Einar Kr, hæstvirtur sjávarútvegsráðherra. Takk fyrir að slá síðasta naglann í kistulokið. Það munaði ekki um það, á bólakaf í einu höggi.
Ég vona að þú hafir verið meðvitaður um það hvað þú varst að gera ! Fólkið í sjávarþorpum Íslands mun ætíð minnast þín fyrir náðarhöggið sem þú gafst kvótakerfinu.
Ég er ekki eins viss um að samráðsforstjórar LÍÚ og galtómu jakkafötin í bönkunum átti sig á því hverslags risa brotsjór æðir óbeislaður að lunningu lífs þeirra !
Til hamingju íslenzka þjóð !
![]() |
Breskir fiskkaupendur fagna ákvörðun um afnám útflutningsálags á fiski |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.6.2007 | 14:37
Útrás fyrir íslenzka sauðfjárbændur
Gullið tækifæri fyrir íslenzka sauðfjárbændur. Hrútspungar fyrir "Skotapilsunga" gætu orðið rán dýr útflutningsafurð í framtíðinni og verið í harðri samkeppni við lystuga neytendur þorramats.
Íslenzkt sauðfé hefur löngum haldið lífi í vorri þjóð og mun gera um ókomna framtíð.
Lengi lifi sauðkindin og Guðni Ágústsson !
Mig hefur oft langað, ef það gæfist næði,
íslenskri sauðkind helga lítið kvæði.
Sæma hana nokkrum sannleiks-hlýjum orðum
samskiptin þakka bæði nú og forðum.
Enginn á stærri þátt í lífi þjóðar
er þraukaði af í landi íss og glóðar.
Þolin og hörð í þrautum, hvað sem dynur,
þúsund ár mannsins bjargvættur og vinur.
Höfundur ljóðs: Þorfinnur Jónsson frá Ingveldarstöðum í Kelduhverfi.
![]() |
Skotapilsapungar falla undir ný lög |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2007 | 14:00
Upphaf rækjuveiða á Íslandi
Það þarf ekki að koma á óvart að þeir tveir menn sem öðrum fremur teljast frumkvöðlar rækjuveiða og rækjuiðnaðar á Ísafirði, skyldu vera af erlendum uppruna, framsýnir menn með önnur viðhorf en landinn.
Þetta voru Norðmennirnir Ole Gabrielsen Syre og Símon Olsen frá eynni Karmöy sem er rétt sunnan við Haugasund í Noregi.
Sá fyrrnefndi var búsettur á Íslandi frá árinu 1909, lengst af á Ísafirði. Hann var einn af upphafsmönnum síldarsöltunar þar og rak síldarútveg og lifrarbræðslu um árabil. Syre var opinn fyrir öllum nýjungum í sjávarútvegi og reyndi fyrir sér við margt.
Um miðjan þriðja áratuginn stundaði hann reknetaveiðar í Ísafjarðardjúpi og var því þaulkunnugur fiskigöngum og öllum aðstæðum við Djúp. Hann hefur án nokkurs efa veitt rækjunni í Djúpinu athygli og gert sér grein fyrir þeim möguleikum sem fólgnir voru í rækjuveiðum enda gjörþekkti hann slíkar veiðar frá heimabyggð sinni.
Árið 1924 keypti Ole Syre 56 brúttólesta vélbát í Noregi sem hann gaf nafnið Hrönn og var skráður á Ísafirði frá 23. júlí 1924. Nokkrum dögum seinna, eða þann 27. júlí, segir í Skutli: O.G. Syre hefur fengið laglegan bát frá Noregi, c. 60 tons; skal hann hefja síldveiðar.
Með þessum báti kom Símon Olsen ásamt Harald Hauge sem var mágur Syre en móðir hans var föðursystir Símonar. Höfðu þeir frændur með sér rækjunót frá Noregi og er talið fullvíst að þá um sumarið hafi þeir félagar Syre og Olsen, ásamt Harald Hauge, gert tilraun til að veiða rækju í Ísafjarðardjúpi. Reyndu þeir rækjuvörpuna tvisvar og fengu dágóðan afla.
Heimild: Fræðsluhorn bb.is
![]() |
Rækjuvinnslu hætt hjá Miðfelli á Ísafirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.6.2007 | 01:12
Við leiði Gísla Konráðssonar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.6.2007 | 10:25
Sólarupprisuræða
23.6.2007 | 22:25
Mey að morgni
Tenglar
Fyrir sjómenn.
- Veðurspá - Veðurstofan
- Veður og sjólag
- Atlantshafsspá
- Belgingur
- Ventusky.com
- Flóðatafla Reykjavík
- Heimsmarkaðsverð á fiski
- Reiknistofa fiskmarkaða
- Fiskistofa
- Norges Fiskarlag
- Staðsetning skipa
- Landhelgisgæslan
- Hrafnseyri
- Byggðasafn Vestfjarða
- Hús skáldsins
- Sögueyjan Ísland
- Ríkisútvarpið rás 1
- Facebook - Nilli
Bloggvinir
-
Ársæll Níelsson
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Hafdís Ösp
-
Jón Kristjánsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Þórður Sævar Jónsson
-
Lýður Árnason
-
Ólafur Ragnarsson
-
Karl V. Matthíasson
-
Valmundur Valmundsson
-
Árni Gunnarsson
-
Elfar Logi Hannesson
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Kristján H Theódórsson
-
Ívar Pálsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Magnús Jónsson
-
Jens Guð
-
Jón Valur Jensson
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Hörður Halldórsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Leitinni frestað
- Tvöföld þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB
- Leita í Elliðaárdalnum
- Ferðamenn keyrðu Búa niður og stungu af
- Kópavogsbúar fögnuðu 17. júní
- Mannlaus bifreið á hvolfi
- Órói í samfélaginu og gildum ógnað
- Myndir: Þjóðbúningar og landvættir í miðbænum
- Glös hristust á heimili bæjarfulltrúans
- Öll spjót stóðu á dómsmálaráðherra
- Skjálfti á Suðurlandi
- Ragga Gísla er borgarlistamaður Reykjavíkur
- Forseti hvatti til vonar og kærleika
- Fimmtán fengu fálkaorðuna í dag
- Ný forysta kjörin en óvissa um fjármálin