Leita í fréttum mbl.is

Borga fyrir hægri vænginn

Þegar ég var strákur á Tálknafirði þá höfðum við guttarnir rífandi tekjur af því að drepa svartbak. Davíð oddviti Tálknafjarðarhrepps borgaði okkur strákunum fyrir hægri vænginn álitlega upphæð. Við gengum svo hart fram í drápinu að það stór sá á svartbaksstofninum og hefur lítið borið á svartbak síðan. Ekki höfðum við nein venjuleg skotvopn heldur var mest notast við loftrifla, teyjubyssur, boga og örvar. Þeir sem áttu ekki slík vopn urðu fljótlega algjörir meistarar í grjótkasti og voru margir ótrúlega hittnir. Á veturnar þegar loðnan barst að landi var mjög vinsælt að leggja loðnubeitta línu í fjöruna og bar þá oft vel í veiði. Legg til að Reykjavíkurborg greiði fyrir hægri vænginn og málið er dautt.
mbl.is Náttúrufræðistofnun leggst gegn fugldrápi með svefnlyfjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Villa vantar bara góðan ráðgjafa, er það ekki?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 27.3.2007 kl. 21:25

2 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Það þarf ekki heila stofnun, eitthvað bákn til að losna við þennan fiðurfénað. Sleppa púkunum lausum í vor á máfastofninn.

Níels A. Ársælsson., 27.3.2007 kl. 21:31

3 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Og leiguþrælunum þegar við sleppum úr hlekkjunum á hina Mávana sem hneptu okkur í ánauð.

Níels A. Ársælsson., 27.3.2007 kl. 21:33

4 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Já og veiða hann bara á línu, en yrð ekki settur kvóti á þær línuveiðar?

Sigfús Sigurþórsson., 27.3.2007 kl. 22:03

5 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Jú ábyggilega og 15% línuívilnun að auki.

Níels A. Ársælsson., 27.3.2007 kl. 22:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband