Leita í fréttum mbl.is

Þrír menn drukkna í Reykjavíkurhöfn

Anno; 15. september 1929:

Í fyrrinótt drukknuðu þrír menn við svonefnda Elíasarbryggju vestan við hafnarbakkann. Menn þessir fundust allir um líkt leyti þarna og er ekki vitað með hverjum hætti slysið hefur borið að. Lítur helzt út fyrir að mennirnir hafi hrokkið út af bryggjunni hver í sínu lagi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Dálítið sérstakt að hrökkva útaf bryggjunni, hver í sínu lagi. Nema það hafi verið hálka þarna og enginn þeirra kunnað að synda

Brynja Hjaltadóttir, 28.3.2007 kl. 00:40

2 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Já þetta er dálítið undarlegt. Kanski verið búnir að fá sér aðeins of mikið. Einn dettur, næsti reynir að bjarga og gengur lítið, og sá þriðji reynir að bjarga hinum tveimur og fer út í. Málið dautt.

Níels A. Ársælsson., 28.3.2007 kl. 00:48

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Sennilega hafa þeir ætlað að bjarga hver öðrum.  Eins og sagan um Einbjörn, Tvíbjörn og Þríbjörn.

Jón Steinar Ragnarsson, 28.3.2007 kl. 08:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband