Leita í fréttum mbl.is

60 tonn af laxi í einu hali og allt dautt

Ætli Þorstein Már Baldvinsson hafi upplýst NASF um þau 60 tonn af villtum laxi sem eitt af skipum Samherja hf, fékk í einu hali í flottroll SA af Íslandi ? Þetta átti sér stað hvort sem mönnum líkar betur eða ver. Nánar var um ræða flottrollskipið Vilhem Þorsteinsson EA-11. Allur þessi lax var að sjálfsögðu dauður þegar honum var hent í hafið aftur. Þetta er ekki eina tilfellið með flottrollsskipin og laxinn. Hef heyrt af mun verra dæmi þar sem um var að ræða 250 tonn af laxi en ég hef ekki staðfestingu á því.
mbl.is Orri Vigfússon hlýtur helstu verðlaun baráttufólks fyrir verndun umhverfissins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það kæmi nú kusk á nokkra hvítflibba ef þetta kæmi upp á yfirborðið svo ég segi bara eins og allir sem málið varðar Ussssss ekki segja Orra........ 

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 22.4.2007 kl. 11:26

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég trú því nú ekki að veiddum fiski hafi verið kastað aftur í sjóinn af skipum Þorsteins Más ... ég er meira að segja handviss um að sjávarútvegsráðherrann okkar, blessaður unginn, myndi aldrei trúa svonalöguðu upp Þorstein eða aðra af hans kalíberi.

Jóhannes Ragnarsson, 22.4.2007 kl. 15:59

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Enda var í fréttum í dag að búið er að ákveða að færa alla skipverja á Baldvin Þorsteinssyni EA-11 yfir á önnur skip Samherja hf.  Baldvin á að fara til dótturfyrirtækis Samherja í Þýskalandi og verður því undir þýskum fána ef þetta kemst í fréttir.

Jakob Falur Kristinsson, 23.4.2007 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband