Leita í fréttum mbl.is

Tuttugustu og fyrstu aldar sjórán

Það var eðli hvers góðs sjóráns hér áður fyrr að ránsfengnum var skipt upp fljótt og vel í skjóli nætur !

Er ekki komið að ögurstundu fyrir þessa ræningja og að landslýður grípi til aðgerða gegn þeim líkt og með sjóræningjana forðum daga ?

Ætla ráðamenn Íslands virkilega ekkert að aðhafast gegn þessum þjófum sem leika sér að því mánuðum saman að kasta krónunni á milli sín í sýndarviðskiptum til þess eins að stela öllu eigum almennings á Íslandi ?


mbl.is Með 62 milljónir á mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Ólafsson

Mæl þú manna heilastur

Einar Ólafsson, 1.8.2008 kl. 12:56

2 identicon

Heill og sæll; Níels !

Þakka þér; þarfa hugvekju. Það er ekki nema von, að fólk,, eins og Geir H. Haarde og Ingibjörg S. Gísladóttir hneykslist á Mugabe gamla og herstjórunum austur í Búrma, og sjá ekki skítinn, í sínu eigin andyri, sem við blasir, eins og með þennan sjálfumglaða pilt, í Kaupþingi Búnaðarbanka, hver leikur sér, með okkar eigur.

Hvað skyldi hann þurfa; að ná háum aldri, til þess að njóta, þessa fjár, Níels ?

1000 ára; jafnvel 5000 ára, eða meir ?

Með beztu kveðjum, sem fyrr /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 1.8.2008 kl. 13:08

3 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Nilli minn Siggi Einars er flúinn út með sínar millur og borgar ekki grænan túskilding til okkar sameiginlegra þarfa.

vOnandi hleypur spikið eitthvert sem spik stundum fer á síluðum mönnum.

Annars að öðru og betra.

Sá myndir á Tálknafjarðarvefnum, af brennunni á Tálkanfjörinu.

Helvíti er karl faðir þinn flottur, hefur ekki breystst kvint frá því ég bjó þarna.

Vinarkveðjur til hans og mömmu þinnar frá gamla íhaldinu.

Miðbæja´rihaldið

fyrrum Tálknafjarðar/Vestfjarðaríhald

Bjarni Kjartansson, 1.8.2008 kl. 13:28

4 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Svar við fyrri spurningu: Jú

Svar við seinni spurningu: Nei

Magnús Þór Hafsteinsson, 1.8.2008 kl. 19:32

5 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Við megum ekki líta framhjá þessu í ljósi þess að hér er sennilega um að ræða messiah. Fyrst hann er á svona háum launum þá hlýtur hann að vera boðberi fagnaðars - sérstaklega á þessu krepputímum. Hann mun leiða okkur í gegnum yfirdrætti, skuldabréf og aðra kúgun sem efnahagslífið á íslandi hefur dregið okkur út í - tilneydd!

Sumarliði Einar Daðason, 1.8.2008 kl. 19:58

6 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll Nilli.Góður sem endra nær.Tek undir ofanskráð og kvitta hér með fyrir innlit síðan síðast.Kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 2.8.2008 kl. 14:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband