Leita í fréttum mbl.is

Alvarleg áminning til ríkistjórnar Íslands

sameinuðu þjóðirnar

Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna (MSÞ) komst að þeirri niðurstöðu sl, haust að ríkistjórn Íslands hafi brotið mannréttindi á tveimur einstaklingum, þeim Erni Sveinssyni og Erlingi Haraldssyni og íslenzka ríkinu bæri að greiða þeim bætur.

Einar vestfirðingur Guðfinnsson sjávarútvegs sendi MSÞ smá bréf í pósti þar sem hann neitar að sjálfsögðu kröfu nefndarinnar um að greiða sjómönnunum bætur vegna kvótakerfisins með þeim rökum -

"þá kæmu allir hinir "vitleysingarnir" á eftir og heimtuðu líka bætur"

Ísland er þó aðili að nefndinni og hefur skuldbundið sig til að hlíta úrskurðum hennar. Í stað þess sendi Einar vestfirðingur lögfræðilegan útúrsnúning, sem hann segir stjórnarflokkana hafa samþykkt.

Lögfræðilegu útúrsnúningarnir séu -

"Til marks um hve alvarlega íslenzk stjórnvöld hafi tekið málið".

Hins vegar lofar ráðherra fyrir hönd ríkistjórnar að líta betur á málið síðar á kjörtímabilinu !


mbl.is Íslendingar telja mannréttindi verð fórna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Gott að vita þessa afstöðu þína Hippókrates. Takk fyrir það.

Níels A. Ársælsson., 4.8.2008 kl. 00:33

2 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Alls staðar er þessi Hippókrates að ota sínum tota. Hvergi friður.

Get tekið undir með ykkur um kvótakerfið. Enn ein bölvunin sem við sitjum undir vegna framsóknarfjósaflokksins. Í siðmenntuðum löndum hefði verið búið að ákæra þennan flokk fyrir stórfelld afbrot gegn þjóðinni, loka honum og læsa forsprakkana mellulausa í steinunum upp á viskí og brauð.

Og íhaldið leyði þessum rugludöllum að vaða upp endalaust. Skömm þess mun vara meðan landið er í byggð.

Sigurður Sigurðsson, 6.8.2008 kl. 14:20

3 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll félagi.Góður sem endranær.Tek undir hvert orð sem þú skrifar hér og kvitta fyrir lestur á því sem þú skrifar hér á síðunni.Kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 6.8.2008 kl. 22:04

4 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ég er fædd i RVK, en það það þarf engar rosa Gáfur til að sjá óréttlætið?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 10.8.2008 kl. 01:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband