Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007
19.6.2007 | 21:39
Kvótaleigan er ekki ný til komin
Anno; 12. ágúst 1779. Jón Arnórsson sýslumaður skrifar um þá kvöð, að fiskimenn úr öðrum héruðum greiði hinn svokallaða manntalsfisk í verstöðvum í Snæfellsnessýslu. Fylgiskjöl: Útskriftir, uppköst og bréf og konungsúrskurður 9. apríl 1781.
Það voru þá kanski Sandarar sem byrjuðu á þessum andskota ? Fannar, svaraðu þessu !
19.6.2007 | 16:51
Hvurslags frekja er þetta
...............eiginlega í nágrönnum Parísar litlu ? Stúlkan verður fyrirmynd annara kvenna eftir betrunarhús vistina og að öllum líkindum jómfrú á ný.
Eins og einn ágætur maður sagði; "Stattu upp stúlka mín, syndir þínar eru fyrirgefnar, þú munt aftur verða hrein mey."
![]() |
Nágrannar Parísar vilja hana burt úr hverfinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.6.2007 | 15:22
Stórlaxar að verða útdauðir í ám landsins
Þetta kemur fram í frétt á forsíðu Fréttablaðsins í gær 18.06.2007.
"Óðinn Sigþórsson, formaður Landssambands veiðifélaga, segir að fækkun stórlaxins sé alvarlegt vandamál.
"Við höfum unnið að því með Veiðimálastofnun að hvetja veiðimenn til að sleppa stórlaxinum. Það hefur vissulega haft áhrif og menn hafa sleppt laxi í vaxandi mæli. Samt eru 60 prósent af laxi drepin sem er óásættanlegt."
Landssambandið hefur ekki vald til að setja veiðifélögunum reglur. "En þau hafa tekið tilmælum okkar vel og mörg hver bannað að stórlaxi sé haldið"
Því hefur marg sinnis verið haldið fram að flottrollsveiðar séu að ganga frá laxastofnunum dauðum. Ég legg til að Landsamband veiðifélaga láti nú ransaka þann þráláta orðróm sem uppi hefur verið á meðal sjómanna að allt að 60 tonn af laxi hafi veiðst í einu holi um borð í einu af skipum Samherja hf.
Mörg dæmi eru um að lax hafi komið í flottroll í miklu magni og honum hafi verið hent dauðum eða þá að hann hafi hreinlega verið bræddur í mjöl.
Frétt; http://vefblod.visir.is/index.php?netpaper=344
19.6.2007 | 14:49
Á milli vina
"Ég hef verið óheppinn með báðar konurnar mínar."
"Hvernig þá ?"
"Nú, sú fyrri stakk af með öðrum manni."
"En sú seinni ?"
"Hún gerði það ekki."
19.6.2007 | 03:11
Einn góður
"Herra Sæmundur. Mig langar að giftast dóttur þinni."
"Af hverju ertu að trúa mér fyrir vandræðum þínum ?"
18.6.2007 | 17:03
Einfalt mál að leiðrétta
Það er þjóðhagslega nauðsynlegt að leysa upp stærstu útgerðarfélögin og leggja þau niður til að sjávarbyggðir landsins geti þrifist á ný.
Það eru fjölmörg dæmi um að slíkt hafi verið gert víðsvegar um heiminn !
![]() |
Misráðið að gera harðindin að tylliástæðu til breytinga á kvótakerfinu" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.6.2007 | 15:54
Einn góður
Jóhann tók óhappinu eins og sannur karlmaður.
Hann kendi konunni sinni um.
18.6.2007 | 10:36
Ósjálfbærir leiguþrælar LÍÚ
Sjálfbær þróun (e. sustainable development) er sú þróun sem gerir fólki kleift að mæta þörfum sínum án þess að draga úr möguleikum komandi kynslóða til hins sama.
Hverjir ætli séu möguleikar sona minna í framtíðinni í Íslenzkum sjávarútvegi samkvæmt þessari skilgreiningu í ljósi leiguþrælakerfis LÍÚ ?
Eins og Cato hinn gamli hefði sagt; "Auk þess legg ég til að Samherja hf, verði eytt og Halldóri Ásgrímssyni stungið í steininn sem eftir lifir"
![]() |
Aukin krafa um sjálfbærni í sjávarútvegi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2007 | 01:30
Tveir góðir
"Læknir ! Mér finnst ég vera jarðaber."
"Einmitt ! Og það er þá væntanlega þess vegna
sem þú ert eins og mauk í framan ?"
Ella: "Af hverju gengurðu út á hlið eins og krabbi ?"
Dóra: "Æ, það er út af þessum nýju pillum sem
læknirinn lét mig hafa. Þær hafa víst hliðarverkanir."
17.6.2007 | 22:17
Halldór Ásgrímsson ásakaði Vestfirðinga um niðurrifsstarfsemi
Frétt úr DV 18. nóvember 1986.
Ummæli Halldórs á Fiskiþingi:
"Sérstaklega hefur það verið áberandi í ummælum nokkura stjórnmálamanna frá Vestfjörðum að lausn í hinum ýmsu byggðum þar sé fólgin í því að leggja í rúst það sem byggt hefur verið upp í þessum málum. Ég gæti vitnað í ýmis ummæli þessu til stuðnings en læt nægja að vitna í nýlega staðhæfingu svo hljóðandi"
Tilv í þingmann Vestfjarða;
"Afleiðingar kvótastefnunnar eru svo alvarlegar gagnvart íbúum Vestfjarða að Halldór Ásgrímsson má frá sjónarmiði Vestfirðinga jafna við mestu óáran sem yfir þann landshluta hefur gengið. Enginn einn atburður, hvorki af völdum manna né máttarvalda, hefur ógnað svo hagsmunum vestfiskra byggða. Tilv lýkur.
Tilv, í orð Halldórs.
Halldór sagði að yfirlýsingar sem þessi, og raunar fleiri þjónuðu engum tilgangi. Vestfirðingar hefðu ekki farið verr út úr fiskveiðistjórnunni en margir aðrir og þeir standi nú betur en ef engu hefði verið breytt. En jafnvel þótt þeir hefðu misst eitthvað yrðu menn fyrst og fremst að hugsa um heildarhagsmuni þjóðarbúsins.
Síðan sagði Halldór;
"Það verður aldrei fundin upp fiskveiðistefna sem allir verða sáttir við. Það er hinns vegar slæmt að einstakir forystumenn í stjórnmálum telji það líklegustu leiðina til að auka fylgi sitt að gera sem minnst úr störfum mínum og þeirra fjölda annara sem hafa af mikilli einlægni tekið þátt í því að byggja upp samstöðu um þetta erfiða mál í þjóðfélaginu. Tilv, lýkur.
Þar sjáum við það hverslags skepna þessi maður Halldór Ásgrímsson er og hefur alltaf verið. Þetta ógeð er hataðasta kvikindi sem uppi hefur verið frá landnámi.
Auk þess legg ég til að Samherja hf, verði eytt og Halldór Ásgrímsson verði dæmdur í ævilangt fangelsi.
Tenglar
Fyrir sjómenn.
- Veðurspá - Veðurstofan
- Veður og sjólag
- Atlantshafsspá
- Belgingur
- Ventusky.com
- Flóðatafla Reykjavík
- Heimsmarkaðsverð á fiski
- Reiknistofa fiskmarkaða
- Fiskistofa
- Norges Fiskarlag
- Staðsetning skipa
- Landhelgisgæslan
- Hrafnseyri
- Byggðasafn Vestfjarða
- Hús skáldsins
- Sögueyjan Ísland
- Ríkisútvarpið rás 1
- Facebook - Nilli
Bloggvinir
-
Ársæll Níelsson
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Hafdís Ösp
-
Jón Kristjánsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Þórður Sævar Jónsson
-
Lýður Árnason
-
Ólafur Ragnarsson
-
Karl V. Matthíasson
-
Valmundur Valmundsson
-
Árni Gunnarsson
-
Elfar Logi Hannesson
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Kristján H Theódórsson
-
Ívar Pálsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Magnús Jónsson
-
Jens Guð
-
Jón Valur Jensson
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Hörður Halldórsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 765213
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar