Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Íslenzki sjómaðurinn, þriðji og síðasti hluti

Það var þín vegna

sem við höfum

menntast

og byggt.

Það varst þú

sem fórnaðir,

skólagöngu þinni,

konunni, börnunum,

hvítu húfunni.

Það ert þú

sem ert kraftur okkar

svo stæltur

sterkur, óbugandi.

Þú ert demantur

íslenzku þjóðarinnar,

og ég elska þig.

 

Höfundur; Nanna Hálfdánardóttir.


Samherji hf, gerir það gott í brottkasti og smáfiskadrápi undir Pólsku flaggi við Bjarnareyjar

SamherjatogariTråleren hadde lørdag gjort flere trålhal i det samme området i fiskevernsonen, rundt 25 nautiske mil nord for Bjørnøya, og fangsten inneholdt en for stor andel fisk under minstemålet.

Derfor blir skipet brakt til Tromsø og saken overlatt Troms politidistrikt.

– Det er ikke uvanlig at man kan få små fisk i fangsten, men «Polonus» hadde altfor høy andel. Da er man pålagt å skifte felt til et område der det er mindre risiko for å få den sammensetningen av fisk, sier operasjonsoffiser i Kystvakten, Christian Isaksen, til NTB.

Det var mannskaper fra kystvaktskipet «Stålbas» som bordet tråleren.

Området rundt Bjørnøya er oppvekstområde for ungfisk, spesielt torsk og hyse. Blant annet er to spesielle områder avstengt for fiske fordi det er påvist for mye småfisk her.

– Det blir opp til Troms politidistrikt å vurdere hva slags straffereaksjon tråleren skal få, sier Isaksen.

Eins og Cato hinn gamli hefði sagt; "Auk þess legg ég til að Samherja hf, verði eytt"


Engin hagræðing í sjávarútvegi orðið síðastliðin 25 ár heldur einungis framfarir

.........en aðalega óstjórnleg spilling, græðgi og samþjöppun aflaheimilda. Hrun Vestfjarða ! Er það hagræðing í sjávarútvegi ? Hvað hefði afmælisbarnið  Jón Sigurðsson forseti vor frá Hrafnseyri við Arnarfjörð sagt hefðan hlustað á ræðu forsætisráðherra í dag ?

Jón Sigurðsson hefði að öllum líkindum tapað sér algjörlega.


Íslenzki sjómaðurinn, 2 hluti

Þú silgdir

út glampandi

hafsflötin,

silgdir á móti

ólgandi bárunni

braust móti storminum

og ógnandi hríðinni,

komst heim

bróðurlaus,

föðurlaus, vinalaus.

Það ert þú sem ert

uppistaða okkar lands.


Íslenzki sjómaðurinn

Þú sem steigst

upp úr blautum

barnskónum

á sterklega skipsfjöl

hugrakur unglingur.

Lífsglaður

þú sem rérir með

föður, bróður

frænda eða vini.

Sóttir auðinn

í heljargreipar,

til að auðga land þitt.

 

 


Hákarl

hákarlHákarl (latína:Somniosus microcephalus) er grannvaxinn, sívalur, brjóskfiskur með góða heyrn. Hákarl hefur hvassar tennur í skoltum sínum í víðum kjafti. Augu og tálknaop hákarls eru smá. Algeng lengd hákarls er 2-5 metrar. Hákarlar lifa á blönduðu fæði. Hákarl gýtur ungviði sínu sem er u.þ.b. 40 cm. við got.

Nýting

Um hákarl má lesa m.a. í Snorra Eddu, Grágás og Jónsbók, þ.e. hákarlsreka, og um verkaðan hákarl er skrifað í skrá yfir eignir Hóladómkirkju frá 1374. Var hákarl veiddur með Lagnvaði, keflvaði og venjulegum vað og svo hákarlalínu. Á 14. öld var hákarl orðinn nokkuð algengur í mataræði Íslendinga. Hákarlaveiði var aukageta við þorskveiðar og þótti nokkur búhnykkur af hákarli, en hákarlaveiðar voru upphaflega að mestu leiti stundaðar á Vestfjörðum og Snæfellsnesi. 1865-1875 var rúmur helmingur alls hákarlslýsis fluttur út frá Norður og Austuramti. Eftir 1900 dró verulega úr hákarlaveiðum og lögðust nærri af um 1930, því mjög dró úr eftirspurn eftir hákalslýsi. Enn er þó sá hákarl sem veiðist kæstur. Framleiðsla hákarlalýsis til manneldis hefur farið vaxandi að undanförnu.

Víða eru aðrar tegundir hákarla veiddar til gerðar hákarlauggasúpur.

Gælunöfn

Hákarl hefur verið nefndur ýmsum nöfnum á íslensku. Meðal þeirra eru: axskeri, blágot, blápískur, brettingur, deli, got, grágot, gráni, hafkerling, háskerðingur, hvolpur, raddali, rauðgot, skauli, skerill, skufsi.

Hákarl hefur einnig gengið undir nöfnum eins og: bauni, háki, háksi, láki og sá grái. Einnig fóru nafngiftir hákarls eftir stærð hans og útliti. Deli var haft um stutta digra hákarla, dusi um stóran hákarl, gotungur um feitan hákarl, lopi um miðlungsstóran, níðingur um hákarl sem var styttri en fimm álnir, hundur, raddali, skauli og snókur um lítinn hákarl og ælingi var haft um hákarl sem var á mörkum þess að vera talinn hirðandi

Heimild

  • Sjávarnytjar við Ísland, Karl Gunnarsson, Gunnar Jónsson, Ólafur Karvel Pálmason. Mál og menning, Reykjavík, 1998.
  • Kynning á íslenskum sjávarútvegi: Ekkert slor, í Háskólanum á Akureyri 2000

mbl.is Fimm hákarlar á einni lóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sólarupprisuræða

Kærir bræður ha

hestar og fransmenn

hjólreiðamenn og lóðahundar

lestamenn og kettir !

Þegar konfersráðið kemur, -

það er nefnilega það !

Þrjátíu vertíðir á sjó.

Sá sem rær hjá Gúðmúnsen þarf herskip.

 

Konan sem átti börnin ha

hún hefur gefið þér fisk

og það sést puntstrá  og stjarna

út um faðirvorið í Brekkukoti.

En sá sem rær fyrir Gúðmúnsen þarf herskip.

 

Höfundur; Halldór Laxnes.

Eins og Cato hinn gamli hefði sagt; "Auk þess legg ég til að Samherja hf, verði eytt"

 


mbl.is Herskipaheimsókn í Reykjavíkurhöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvótakerfið er ónýtt við stjórn fiskveiða:

Formaður færeysku sóknardaganefndarinnar, Óli Samró, segir að brottkast á fiski af norskum skipum fyrir um tíu milljarða ísl. króna á hverju ári, sé bein afleiðing af kvótakerfinu sem þar er notað til að stýra fiskveiðunum.

 

Í frétt í Sosialurin segir að norskir fiskifræðingar meti það svo að í ár verði 50 til 200 þúsund tonnum af fiski hent í sjóinn og aflaverðmætið nemi um tíu milljörðum íslenskra króna. Kjell Nedreaas hjá stofnstærðardeild norsku hafrannsóknastofnunarinnar segi í samtali við NTB að brottkastið sé svo mikið að það hafi áhrif á kvótaákvarðanir sem eftir eigi að taka.

 

Kvótakerfið virkar ekki. Það veldur því að sjómenn neyðast til að finna leiðir til þess að fá sem mest út úr þeim fisktonnum sem þeim er leyft að veiða. Sókardagakerfið er hins vegar þannig úr garði gert að allur fiskur kemur að landi, segir Samró en hann segir að Norðmenn geti ekki hugsað sér eða viðurkennt að eitthvað sé að kvótakerfinu. Í staðinn reyni þeir að leysa einstök vandamál þegar þau koma upp og sífellt sé verið að lappa upp á kerfið.

-- Það finnst engin lausn á þessu fyrr en menn ráðast að höfuðrót vandans, segir Óli Samró.


mbl.is Smábátaeigendur krefjast endurskoðunar á aðferðafræði Hafró
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtilega orðaðar auglýsingar

 1. Sérstakur hádegisverðarmatseðill:
Kjúklingur eða buff kr. 600, kalkúnn kr.
550, börn kr. 300.

2. Til sölu: Antikskrifborð, hentar vel
dömum með þykkar fætur og stórar skúffur.

3. Nú hefur þú tækifæri til að láta gata
á þér eyrun og fá extra par
með þér heim.

4. Við eyðileggjum ekki fötin þín með
óvönduðum vélum, við gerum það
varanlega í höndunum.

5. Til sölu nokkrir gamlir kjólar af ömmu
í góðu ástandi.

6. Þetta hótel býður upp á bowlingsali,
tennisvelli, þægileg rúm og aðra
íþróttaaðstöðu.

7. Brauðrist: Gjöfin sem allir fjölskyldumeðlimir
elska, brennir brauðið sjálfvirkt.

8. Ísafjarðarkaupstaður: Starfsmann vantar,
kvenmann, til starfa.

9. Vantar mann til að vinna í dínamítverksmiðju.
Þarf að vera tilbúinn til að ferðast.

10. Notaðir bílar.  Því að fara annað og láta svíkja
sig.  Komdu til okkar!

11. Vinna í boði fyrir mann til að hugsa um kú sem
hvorki reykir né drekkur..

12. Ólæs?  Skrifaðu okkur strax í dag og við munum veita
þér ókeypis aðstoð.

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband