Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008
31.3.2008 | 23:24
Fjörtíu sjómenn farast í ofsaveðri
Anno; 1903.
Dagana 8. 9. marz gekk ofsaveður um mestan hluta landsins. Tvö fiskiskip frá Eyjafirði, Oak og Skjöldur, fórust í veðrinu með allri áhöfn. Voru 19 menn á Oak en 12 á Skildi. Af fiskiskipinu Valdemar úr Engey féllu þrír menn útbyrðis, tveir þeirra drukknuðu, en hinum þriðja skolaði inn aftur, hann dó þó skömmu síðar.
Af fiskiskipinu Karolínu frá Mýrarhúsum drukknuðu fimm menn, þar á meðal skipstjórinn. Af fiskiskipinu Sigríður frá Hafnarfirði féll stýrimaðurinn útbyrðis og drukknaði. Allmörg skip strönduðu í veðri þessu, en mannbjörg varð af þeim öllum.
Nóttina sem veðrið var verst, lágu Grímseyingar úti á bát við eyna og komust ekki í land fyrir ofsaveðri og brimi. Loks sleit bátinn upp, svo bátsmenn áttu ekki annan kost en að freista að hleypa undan veðrinu inn á Eyjafjörð.
Hleyptu þeir upp Grímseyjarsund og inn eftir öllum firði og lentu síðla dags á Oddeyri með heilu og höldnu. Þótti það afreksverk mikið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.3.2008 | 17:06
Álagablettur á Svalþúfu
Á Svalþúfu við Lóndranga er álagablettur. Utan í þúfunni er grasbrekka og hana má ekki slá. Seinast þegar brekkan var slegin, var það gert í óleyfi Malarrifsbónda, sem á ,,þúfuna".
Afleiðing þessa varð sú, að margir sauðir lokuðust óvart inni í sauðahúsi á Malarrifi og urðu þar hungurmorða. Enginn veit af hverju álögin stafa.
Þó má vera að brekkan sé helgistaður álfa, því að eitt sinn er Margrét frá Öxnafelli, skyggn kona, fór þar hjá, sá hún hóp huldufólks í brekkunni og presta í skrúða vera að framkvæma einhverjar helgiathafnir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.3.2008 | 14:56
Matthías og Tolstoy
Reykjavík anno; 25. janúar 1906.
Um Matthísa Jochumsson er birt grein í esperantóblaðinu Tra la mondo í Frakklandi, í tilefni af 70 ára afmæli hans. Er hann þar settur við hliðina á Tolstoy í bókmenntadálki blaðsins, og sóma karlarnir sér þar allvel hvor hjá öðrum. Tolstoy er nú 77 ára og töluvert ellilegri útlits en Matthías.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2008 | 09:41
"Heilbrigðisnefndar -ilmur"
Reykjavík anno; 18. mai 1907.
Oft hefur heilbrigðisnefndinni látið vel að sjá um þrifnað bæjarins. En nú er þó eins og kóróni allt, og túnbletturinn framan við menntaskólann, rétt við fjölförnustu göturnar þrjár, Bankastræti, Lækjargötu og Laufásveg, er albreiddur af samsettum jafningi af mannaskít og kúamykju, svo ófært má heita út úr húsum í hverri af þessum götum, sem vindur stendur upp á ekki talsmál um að opnaður verði gluggi í húsi áveðurs fyrir þessum heilbrigðisnefndarilm .
Vér erum löghlýðnir af náttúru og uppeldi, en fáist ekki nefndin til að ráða bót á þessu tafarlaust, þá vorkennum vér engum þeirra herra, er hér eiga hlut að máli, þótt einhver yrði til að taka einn þeirra eða fleiri og nudda trýninu á honum upp úr túninu.
Hörmulegt ástand í stjórnsýslu Reykjavíkur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.3.2008 | 21:40
Þeir sem róa fyrir Gúðmúndsen þurfa herskip
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2008 | 17:18
Ég hefði ekki staðið í þessari baráttu öll þessi ár
Ég segi fyrir mig, að ég hefði ekki staðið í þessari baráttu öll þessi ár ef ég hefði getað ímyndað mér að staðan yrði svona nokkrum árum síðar", segir Guðmundur og vísar til þess að hann sé síður en svo sáttur við núgildandi fiskveiðistjórnunarkerfi.
Hann telur að kerfið hafi orðið til þess að aflaheimildirnar hafi færst á hendur nokkurra útgerða og litlu sjávarplássin standi eftir meira og minna kvótalaus.
Mér sýnist að það hljóti að vera eitthvað mikið að. Aflaheimildirnar hafa verið að minnka undanfarin ár.
Með fullri virðingu fyrir fiskifræðingunum okkar, sem ég átti ágætt samstarf við í mörg ár, þá eru þeir ennþá að notast við bók Bjarna Sæmundssonar, sem var eini fiskifræðingur landsins þegar hann skrifaði bókina, og hafa sáralitlu við hana bætt", segir Guðmundur.
Ein af meginástæðunum fyrir því að við Íslendingar færðum landhelgina út í 200 mílur var að menn vildu forðast svokallaða ryksugutogara á miðunum, sem fóru á milli hafsvæða og þurrkuðu upp heilu fiskigöngurnar", segir Guðmundur. Við vildum sem sagt losna við þessa togara, en ég spyr: Hvað erum við að gera í dag?
Eru ekki allir að kaupa frystitogara eða verksmiðjutogara og hætta að koma með aflann til vinnslu í landi? Á þessum skipum er umtalsverðu magni af afskurði og slógi hent fyrir borð. Það ég best veit eru verksmiðjutogarar ekki leyfðir innan 200 mílna við Bandaríkin og það sama hygg ég að sé uppi á teningnum hjá Færeyingum.
Heimild; tímaritið Ægir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.3.2008 | 13:04
Allir kvótalausir aumingjar ýti úr vör
.............og rói til fiskjar til bjargar Hannesi !
Leigjum kvóta af "þrælaverzlun LÍÚ" og róum allt hvað af tekur og björgum bezta vini sjávarþorpanna á Íslandi !
Íslandi þúsund ár !
Söfnun fyrir Hannes Hólmstein | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.3.2008 | 11:08
Hlutafélagið Málmur í fjárþröng
Anno 1908.
Hlutafélagið Málmur hf, hélt nýlega aðalfund sinn. Búið er að verja 24 þús. kr. til vélakaupa og ransókna og er félagið nú komið í 4500 kr. skuld.
Leitað hefur verið álits sænsks félags, og taldi það þurfa 250 þús. til gullvinnslunnar, en það fékst ekki í Svíþjóð.
Einnig var leitað til Lundúna, en árángurslaust. Sumir fundarmenn töldu aðferðina við gullleitina hafa verið ranga. Betra hefði verið að grafa göng niður að gulllaginu í stað þess að kaupa og nota dýr borunaráhöld.
Tenglar
Fyrir sjómenn.
- Veðurspá - Veðurstofan
- Veður og sjólag
- Atlantshafsspá
- Belgingur
- Ventusky.com
- Flóðatafla Reykjavík
- Heimsmarkaðsverð á fiski
- Reiknistofa fiskmarkaða
- Fiskistofa
- Norges Fiskarlag
- Staðsetning skipa
- Landhelgisgæslan
- Hrafnseyri
- Byggðasafn Vestfjarða
- Hús skáldsins
- Sögueyjan Ísland
- Ríkisútvarpið rás 1
- Facebook - Nilli
Bloggvinir
- Ársæll Níelsson
- Jóhannes Ragnarsson
- Hafdís Ösp
- Jón Kristjánsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Þórður Sævar Jónsson
- Lýður Árnason
- Ólafur Ragnarsson
- Karl V. Matthíasson
- Valmundur Valmundsson
- Árni Gunnarsson
- Elfar Logi Hannesson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Ketill Sigurjónsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Kristján H Theódórsson
- Ívar Pálsson
- Sigurður Sigurðsson
- Magnús Jónsson
- Jens Guð
- Jón Valur Jensson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- S. Einar Sigurðsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Hörður Halldórsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 33
- Frá upphafi: 763844
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar