Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009
24.8.2009 | 17:05
Hin nýja "Strandgæsla Íslands"
Starfsemi Landhelgisgæslu og Fiskistofu falla einstaklega vel saman.
Sameina ætti þessar tvær stofnanir hið bráðasta enda fengist með því mjög mikill sparnaður á fjármunum og langtum betri nýting á mannskap og tækjakosti Landhelgisgæslunnar.
Einnig mætti fella starfsemi Slysavarnarskóla sjómanna inn í hina nýju strandgæslu og næðist þar líka mikil hagræðing og sparnaður.
Leggja mætti niður alla starfsemi Fiskistofu í Hafnarfirði og færa í höfuðstöðvar Landhelgisgæslunnar.
Útibú Fiskistofu á landsbyggðinni yrðu útibú hinnar nýju stofnunnar sem gæti heitið "Strandgæsla Íslands".
Vinnuheiti "STRANDGÆSLAN"
Ég skora á ráðamenn að ræða þessar tillögur í fullri alvöru nú þegar.
Tólf sóttu um stöðu fiskistofustjóra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.8.2009 | 00:19
Lengi lifi Castro, Kúba og byltingin !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.8.2009 | 20:54
Upplýsingar um Alexander Hamilton
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.8.2009 | 17:47
Haförn rændi tveggja ára barni
Á Skarði á Skarðsströnd átti sér stað sumarið 1879 sá einstæði atburður að haförn rændi tveggja ára stúlkubarni og flaug með það í það minnsta þrjá kílómetra.
Frásögn Ragnheiðar Eyjólfsdóttur:
Móðir mín Matthildur Matthíasdóttir hafði farið niður að á til að þvo þvott. Var brekkuhall niður að ánni, þar sem þvottastaðurinn var. En skammt fyrir ofan var hvammur, og uxu blóm þar innan um hvannir. Þetta var í túninu á Skarði.
Móðir mín skildi mig eftir í hvannastóðinu, er hún fór að fást við þvottinn, taldi mig óhultari þar, fjarri vatninu. Allt í einu heyrði hún, að ég rek upp hræðsluóp, en örn er komin yfir mig, þar sem ég sat við að tína blóm.
Skipti það engum togum að, örninn hefur sig upp og flýgur með mig í klónum hátt í loft upp, en ekki heyrðist til mín nema rétt snöggvast. Hefur strax liðið yfir mig. Í fyrstu flaug örninn afar hátt þarna yfir. Er sem hann hafi viljað komast sem hæst strax, til þess hann kæmist á ákvörðunarstað, þó að honum dapraðist flugið, er frá liði. En vitanlega var ætlun hans að koma mér upp í arnarhreiður, sem var í fjallinu fyrir ofan Kross.
Nú víkur sögunni til fólksins á Skarðstúninu, er þar var við heyskap. þaut hver af stað sem betur gat, til þess að komast í færi við örninn. En sá leikur sýndist ójafn og útséð, hver endirinn yrði, enda sagði móðir mín, að þegar hún leit upp frá þvottinum við ána og horfði á eftir erninum með mig í klónum, gat hún ekki ímyndað sér, að hún sæi mig nokkurn tíma lifandi, og kanski ekki einu sinni liðna.
Brátt kom í ljós, að örninn hafði hér færzt of mikið í fang. Ég var stór eftir aldri og reyndist fuglinum svo þung, að áður en hann var kominn að fjallinu, dapraðist honum flugið, svo að hann flaug það lágt, að einn vinnumaðurinn á Skarði komst á reiðskjóta sínum svo nálægt okkur, að hann gat slengt langri stöng í væng arnarins, svo hann varð að setjast. Og þar slepti hann byrðinni. Var örninn kominn með mig yfir Krossá, svo vegalengdin sem hann flaug með mig, hefur eftir því verið um 3 kílómetrar.
Örninn hafði læst klónum gegnum föt mín á brjóstinu, og voru förin eftir klærnar í hörundinu, en sárin ekki djúp, því fuglinn hafði haft nægilegt hald í fötunum. Móðir mín sagði mér að ég hefði verið dauf og utan við mig í nokkra daga á eftir. En varanlegt mein fékk ég ekkert af þessari einkennilegu loftferð.
Arnarvarp gekk vel | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.8.2009 | 10:52
Ömurleg siðblinda Háskóla Íslands
Nú þyrfti að gera viðeigandi ráðstafanir og benda á hver er einn af fleiri hronsteinum bankahrunsins... kvótaveð og kvótabrask að hætti Ragnars Árnasonar...
Það má heita með ólíkindum að ekki skuli vera búið að fjarlægja Ragnar Árnason einn hættulegasta landráðamanninn úr íslenzku samfélagi !
21.8.2009 | 09:55
Fiskgengd orðin vandamál í mesta fisklandi heimsins ?
Vek athygli á þessari grein Jóns Kristjánssonar fiskifræðings.
Engin síld í haust og óvissa með loðnuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.8.2009 | 11:28
Fyrsta skrefið
.......verður að vera algjört bann við flottrollsveiðum innan íslenzkrar landhelgi.
1. Þorskstofninn skreppur stöðugt saman ár frá ári vegna fæðuskorts (sjálfrán).
2. Rækjustofnar allir hrundir, uppétnir vegna fæðuskorts (afleiðingar loðnuveiða)
3. Allur hörpudiskstofn dauður vegna næringarskorts (afleiðingar loðnuveiða).
4. Loðnustofninn hruninn vegna gengdarlausrar ofveiði (afleiðingar flottrollsveiða).
5. Karfastofnar nánast hrundir vegna ofveiði (afleiðingar flottrollsveiða)
6. Grálúðustofninn nánast hruninn vegna ofveiði og fæðuskorts (afleiðingar loðnuveiða)
7. Rauðsprettustofninn í sögulegu lágmarki vegna fæðuskorts (afleiðingar flottrollsveiða).
8. Miklar blikur á lofti um kolmunann vegna gengdarlausrar ofveiði (afleiðingar flottrollsveiða).
9. Sandsíli og trönusíli uppétið vegna fæðuskorts annarra fiska (afleiðingar flottrollsveiða).
10. Sjófugl allur í stórkostlegri útrýmingarhættu vegna fæðuskorts (afleiðingar flottrollsveiða).
Kallast þetta góður árangur af svokölluðu kvótakerfi við fiskveiðistjórnun á Íslandi í yfir 20 ár ?
Höfum það hugfast að þegar kvótakerfið var tekið upp þá var einungis talið að þorskstofninn einn væri ofveiddur, allir aðrir stofnar voru í góðu jafnvægi og sumir stofnar beinlínis vannýttir.
Vilja vernda sjófugla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.8.2009 kl. 09:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.8.2009 | 11:23
Til umhugsunar fyrir Vestmanneyinga
Þessi upphæð sem Landsbankinn er að afskrifa fyrir útgerðarmanninn mundi duga fyrir tvíbreiðum jarðgöngum fram og til baka frá eyjum og upp á Landeyjarsand.
Og fyrir afganginn mætti smíða nýjan Herjólf og nýjar stórskipahafnir í eyjum og á Landeyjaesandi.
Fyrst komu Tyrkirnir en núna er það Magnús Kristinsson.
Auk þess er annað verðmat á þessum glæp 250 þúsund tonn af þorski upp úr sjó....
Geri aðrir betur !!!!!
Gamli Landsbankinn afskrifar skuldir Magnúsar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
13.8.2009 | 19:02
Ekki bara klappstýra; líka ómerkileg hóra LÍÚ og skósveinn fyrrum stjórnenda Landsbankans
Og hér má sjá kvikindið í glæstum félagsskap við vígslu Icesave í Lux.
Klappstýra hrunsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.8.2009 | 13:10
Tjara og fiður hæfa óþokkum bezt
Nú ættu góðir menn að hafa uppi á kvikindinu og tjarga hann og fiðra öðrum álíka skepnum til viðvörunar !
Hreiðar Már segir lánin lögleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tenglar
Fyrir sjómenn.
- Veðurspá - Veðurstofan
- Veður og sjólag
- Atlantshafsspá
- Belgingur
- Ventusky.com
- Flóðatafla Reykjavík
- Heimsmarkaðsverð á fiski
- Reiknistofa fiskmarkaða
- Fiskistofa
- Norges Fiskarlag
- Staðsetning skipa
- Landhelgisgæslan
- Hrafnseyri
- Byggðasafn Vestfjarða
- Hús skáldsins
- Sögueyjan Ísland
- Ríkisútvarpið rás 1
- Facebook - Nilli
Bloggvinir
- Ársæll Níelsson
- Jóhannes Ragnarsson
- Hafdís Ösp
- Jón Kristjánsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Þórður Sævar Jónsson
- Lýður Árnason
- Ólafur Ragnarsson
- Karl V. Matthíasson
- Valmundur Valmundsson
- Árni Gunnarsson
- Elfar Logi Hannesson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Ketill Sigurjónsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Kristján H Theódórsson
- Ívar Pálsson
- Sigurður Sigurðsson
- Magnús Jónsson
- Jens Guð
- Jón Valur Jensson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- S. Einar Sigurðsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Hörður Halldórsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 764380
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Umdeildir þættir tilnefndir til verðlauna
- Aðstoðarrektor býður sig fram til rektors
- Kristín, Rán, Guðjón og Stefán Máni verðlaunuð
- Þetta þurfa húseigendur að vita vegna veðursins
- Björn Ingi aðstoðar Sigmund: Bað mig um að taka þetta að mér
- Skorið úr um lögmæti aðgerða á föstudag
- Þrír tálbeituhópar sem tala sig saman