Leita í fréttum mbl.is

Ómagar sérhagsmuna munda stríðsöxina

á skreiðarhjöllum

Samtök atvinnulífsins hafa nú ákveðið að taka frið á vinnumarkaði í gíslingu og lausnargjaldið er að útgerðarmenn innan LÍÚ haldi yfirráðum yfir fiskveiðikvóta þjóðarinnar.

Á  sama tíma berast fréttir innan úr bönkunum af því að sjávarútvegsfyrirtækin sem stórauðguðust á óréttlátu gjafakvótakerfi séu að fá afskrifaða milljarða á milljarða ofan.

Í nærri þrjátíu ár hefur byggðum landsins verið að blæða út vegna óréttlætisins sem hefur hlotist af kvótabraskinu og yfirvofandi breytingar hafa nú leitt til þess að útgerðarmenn eru farnir í stríð við þjóð sína.

Þegar mest ríður á við endurreisn efnahagsins birtast þeir okkur fyrst sem þurfamenn inni í bönkunum og láta síðan glitta í vígtennur þegar kemur að því að stokka upp kerfi sem aldrei hefði átt að líðast.

,,Alvarleg staða er nú í atvinnumálum landsmanna en um 14 þúsund eru á atvinnuleysisskrá og útlit fyrir að þeim fari fjölgandi ef ekki verður gripið til róttækra aðgerða,” segir á vefsíðu SA og það eru orð að sönnu.

Hvernig væri að útgerðarmenn kæmu til að mynda með aflann til hafnar svo hægt sé að vinna hann í sjávarbyggðum landsins og hætti að sigla með hann til útlanda?

Eða er það kannski of róttæk aðgerð fyrir Samtök atvinnulífsins?

Nei, við skulum frekar leggja niður Umhverfisráðuneytið eins og samtökin lögðu til í gær en þau gáfu sér tóm frá gíslatökunni til þess.

Þar með er rutt úr vegi enn einni hindruninni á vegi til þess að Ísland geti orðið nýlenda erlendra stórfyrirtækja sem vilja kaupa orku og auðlindir á brunaútsölu.

Í raun eru Samtök atvinnulífsins hlægileg í ljósi alls sem hefur gengið á. Tillögur þeirra í atvinnumálum snúa aðallega að ríkisstyrktum stórframkvæmdum en ómaga sérhagsmunakerfisins á að láta óáreitta á sinni beit.

Annars verður stríð.

Grein fengin að láni á smugan.is


LÍÚ styrkþegi á sólarströnd

styrkþegi íslands

Vinnstri smellið á myndina til að stækka hana.


KVÓTAKÓNGASONNETTAN

fiskur greiddur úr netum

Það er til þjóð sem reisir vönduð vígi

og verndar einkum níðingana sína

er þegna hennar kvótakóngar pína

og kúga sérhvert barn með hreinni lygi.

 

Og þjóðin á í hafsjó fjársjóð fiska

sem fáum mönnum þó er leyft að veiða

og sama fólk fær auðlindum að eyða,

það er sem finnist hvergi nokkur viska.

 

Því þjóðin lætur gráðugt glæpahyski

við gnægtaborðið aleitt jafnan sitja

en lýðnum býðst frá hungri hægur batinn

ef hrekkur lítill brauðmoli af diski.

Og þegar kóngar heimskra hópa vitja

fólk hneigir sig og þakkar fyrir matinn.

hópa vitjafólk hneigir sig og þakkar fyrir matinn.

Höfundur Kristján Hreinsson.


mbl.is Hagnaður sjávarútvegs eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Út við lunningu lífsins

Mynd tekin um borð í síðutogaranum Ver

Út við lunningu lífsins                                         

stendur maður

og hífir í blökk hinna brostnuvona

en í hálýstum sölum hótel borgar

hokra flottræflar framtíðarinnar

og drekka vísitölu drykki

og bíta með gulltönnum í heimskringluna

á meðan hólminn sekkur í skuldafen ríkisbubba og bílífisseggja

þrælar kúgaður verkalýður fyrir salti í grautinn og tilveru sem er ekki  til.

en launin eru

lamaðir leggir og brotið bak

og loforð um bættan ellistyrk

en ekkert gengur nema aftur á bak

því samstaðan er ekki virk.

 

Höfundur: Setfán Þór (Lollinn).


Aðför LÍÚ að lífríki hafsins

Hætta ætti loðnuveiðum við landiðí eitt skipti fyrir öll og banna allar veiðar með flottrolli í lögsögu Íslands.

Flottrollið veldur gríðarlegum skaða á öllum fiskistofnum beint og óbeint. Smug fiska í gegnum flottroll skilur eftir sig 10-15 fallt af dauðum fiski í sjónum umfram það sem skipin koma með að landi.

Flottrollið splundrar göngu fiskitorfa og ruglar göngumynstur þeirra.

Loðnan er undirstaða alls lífríki sjávar við ísland. Ef loðnan er drepin hrynja margir fiskistofnar eins og við höfum illilega orðið vitni af.

Nærtækasta dæmið er léleg nýliðun þorsks, hrun hörpudisksstofnsins, hrun rækjustofnanna og margt fleira.

Baráttan um ætið bitnar síðan með ógnarþunga á öllum sjófugl við Ísland sem að endingu rústar tegundunum.

Baráttan um ætið á ekki að standa á milli gráðugra grútapramma-útgerða og alls lífríki sjávar við Ísland heldur á milli tegundanna.

Stjórnvöld verða að grípa strax til aðgerða og stöðva loðnuveiðar í eitt skipti fyrir öll.


mbl.is 90% af kríuungum hungurmorða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brottkastið er meira við Ísland heldur en í löndum Evrópusambandsins

Myndbönd þau sem sjónvarpskokkurinn Hugh Fearnley-Wittingstall hefur gert um brottkast fiskjar vegna reglna Evrópusambandsins hafa vakið mikla reiði. Síðustu tvo dagana hafa um 200 þúsund manns mótmælt brottkastinu.

Sóðaskapurinn er engu minni ef ekki meiri í íslenzka aflamarkskerfinu þótt lög banni allt brottkast.

Á frystitogurunum er allt brottkastið sett í hakkavél og telst því vera hátækni brottkast í augum LÍÚ.

Eina leiðin til að fyrirbyggja allt brottkast er að taka upp sóknarstýringu að fyrirmynd Færeyinga sem leiðir af sér að íslenska aflamarkskerfið er ónýtt.


mbl.is „Ekkert nýtt í tillögunum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynnið ykkur færeyska fiskveiðistjórnunrkerfið - hér

Það á vel við hæfi í tilefni af heimsókn færeyska sjávarútvegsráðherrans að sem flestir kynni sér af hverju færeyingar köstuðu aflamarkskerfinu að "íslenzkri fyrirmynd" fyrir róða eftir aðeins tveggja ára reynslu og tóku upp nýtt og heilbryggt...

Myndavélaeftirlit um borð í fiskiskipum

Víða um heim er aukinn áhugi á því að efla eftirlit með fiskveiðum með því að koma fyrir eftirlitsmyndavélum um borð í veiðiskipum. Þannig hafa argentínsk stjórnvöld nú leitt í lög að öll úthafsveiðiskip í landinu skuli hafa eftirlitsmyndavélar um borð í...

Glæsileg framistaða eða hitt þó heldur

Ísland flytur út sjávarfang 1,3 miljónir tonna að verðmæti 110 miljarða. Norðmenn flytja út sjávarfang 2,7 milljónir tonna að verðmæti 1000 miljarða. Þessar tölur sýna svo ekki verður um villst hverslags aumingjar hafa stjórnað íslenzkum sjávarútvegi í...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband