Bloggfærslur mánaðarins, október 2007
22.10.2007 | 23:01
San Diego
San Diego er borg í Suður-Kaliforníu í Bandaríkjunum, skammt frá landamærum Mexíkó. Hún er næststærsta borg Kaliforníu og áttunda stærsta borg Bandaríkjanna. Íbúar voru rúmlega 1,2 milljónir árið 2006.
![]() |
250.000 manns flýja heimili sín í San Diego |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.10.2007 | 20:37
Gauksunginn í Mjólkursamsölunni ?
Líklegast er að nú eigi að markaðsdrífa fjósin í landinu í þágu fjármagnsins og til þess þarf auðvitað að fórna Íslenzku kúnni líkt og vel flestum sjávarþorpum hefur verið eytt á altari kvótakerfisins !
Aðferðin er þekkt úr samráðsfjósi LÍÚ og ekki er ólíklegt að gaukarnir hafi verpt í hreiður bænda og Guðbrandur Sigurðsson nú orðin fleygur unginn.
Allavega sýndi unginn réttu vængja tökin þegar reynt var að leggja niður mjólkurbúið á Egilstöðum ekki alls fyrir löngu.
![]() |
Nýtt kúakyn gæti sparað rúman milljarð á ári |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2007 | 19:52
Af hverju engin á Vestfjörðum ?
Er það kanski vegna þess hins sama og með kvótakerfið ?
Eru Vestfirðingar ekki fólk heldur undirmálskvikindi í augum ráðamanna ?
![]() |
Víkingasveitin verði skipuð 52 lögreglumönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2007 | 18:11
Stungið í steininn fyrir kynvillu
Einn skemmtilegasti og jafnframt litríkasti rithöfundur Breta á síðari hluta 19. aldar var Oscar Wilde eða Oscar Fingal O'Flahertie Wills Wilde eins og hann hét fullu nafni.
Hann fæddist í Dyflinni á Írlandi 16. október árið 1854 en hann lést einungis 46 ára gamall í París 30. nóvember árið 1900. Á sínum tíma var hann helst þekktur fyrir frábær leikrit sem hann skrifaði (alls 9 að tölu) og einnig fyrir ljóð, smásögur og eina skáldsögu The Picture of Dorian Grey.
Var Wilde einn skeleggasti fulltrúi hinnar svokölluðu fagurfræði, en sú stefna átti þá töluverðu fylgi að fagna í Englandi, en einkennisorð hennar voru listin listarinnar vegna. En það voru ekki bara ritstörfin sem héldu nafni Wilde´s á lofti.
Maðurinn var í alla staði mjög umdeildur ekki síst fyrir líferni sitt, en hann var t.a.m. dæmdur og settur í fangelsi fyrir kynvillu sem þá var bönnuð á Englandi. Eins og verk margra fremstu rithöfunda heims eru verk Wilde´s tímalaus og eiga jafn mikið erindi við okkur í dag eins og þegar þau komu út.
![]() |
Fágætt eintak bókar eftir Oscar Wilde fannst í handtösku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.10.2007 | 17:21
Þrúgur reiðinnar
Í kjölfar verðbréfahrunsins í Kauphöllinni í New York 23. október 1929 skall á heimskreppa sem hafði gífurleg áhrif á líf fólks í hinum vestræna heimi.
Lífið varð barátta um brauðið frá degi til dags, atvinnuleysi jókst mikið og fólk stóð í röðum til að komast yfir nauðsynjavörur eins og mat og fatnað. Evrópuþjóðirnar voru í sárum eftir fyrra stríð og ekki varð kreppan til að bæta ástandið þar.
Bókin "Þrúgur reiðinnar" eftir rithöfundinn John Steinbeck sem kom út árið 1939 fjallar um kreppuárinn. Hún segir frá flutningi landbúnaðarverkamanna frá Oklahoma til fyrirheitna landsins í vestri, Kaliforníu, þar sem þeir telja að betra líf og atvinna bíði þeirra.
Tugir þúsunda annarra öreiga eru hins vegar á sömu leið í sams konar erindum og því er ekki mikla vinnu að fá þegar til Vesturstrandarinnar er komið.
Aðkomufólksins bíður eymd, atvinnuleysi og niðurlæging. Steinbeck lýsir aðstæðum fólksins á raunsæjan hátt, og bjó meðal annars með fjölskyldu í svipaðri stöðu og sögupersónurnar um tíma til að öðlast betri innsýn í erfitt líf þeirra.
Margt í frásögn Steinbeck minnir á þau kjör og aðstæður sem leiguliðar Íslenzkir búa við í dag í skugga hins illræmda kvótakerfis við fiskveiðar.
![]() |
Óttast verðfall á hlutabréfum í Evrópu á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2007 | 12:57
Rétt ákvörðun hjá Birni Inga
Þarna sýndi Björn Ingi hvers hann er megnugur.
Vildi að fleiri færu að frumkvæði Björns Inga og mætti þar helst nefna kóna LÍÚ vegna afskipta þeirra af stjórnvöldum í hvert skipti sem málefni sjávarþorpana ber á góma.
![]() |
Björn Ingi ekki í stýrihópnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2007 | 18:06
Ýsa lækkaði líka töluvert í verði
........á fiskmörkuðum innanlands. En það góða við ýsuna er að maður setur hana í pott og sýður sér til matar. Hver hefur lyst á að borða verðlaus hlutabréf ?
![]() |
Úr gríðarmiklum hagnaði í taprekstur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.10.2007 | 13:26
Kvótakerfið er ónýtt
Stjórnvöld verða að viðurkenna að kvótakerfið er ónýtt í allri sinni mynd.
Þegar sú viðurkenning liggur fyrir verður hægt að fella niður skuldir sjávarútvegsins og hefja strandveiðar með sóknarmarki.
Ef þessi leið verður farin þá munu sjómenn, stjórnvöld og Hafransóknarstofnun loks ganga í takt.
Erjur um stofnstærðir einstakra tegunda og úthlutað magn munu heyra sögunni til.
Brottkast og kvótasvindl verður ónauðsynlegt með öllu.
Það eru heimskir menn eða illa þenkjandi sem ekki sjá þessar staðreyndir.
![]() |
Einar K: Mat Landssambands smábátaeigenda ótrúverðugt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.10.2007 | 09:15
Enda hefur aldrei staðið til að bora
.......hvorki í Súðavík né i útlöndum !
Útrásin svo kallaða í orkumálum hefur aldrei snúist um borholur og virkjanir í útlöndum heldur einungis um yfirráð örfárra einstaklinga yfir Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur.
![]() |
Orkuútrásin er ekki alls staðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.10.2007 | 20:30
Skömm af þessum rugludalli fyrir land og þjóð
Nú legg ég eindregið til að forseti Íslands heiðri hið fyrsta þá Kristján Loftsson, Konráð Eggertsson og Einar K. Guðfinnsson fyrir störf þeira í þágu hvalveiða við Ísland.
Þessum þremur einstaklingum yrði mikill sómi sýndur með slíkri viðurkenningu og væri hvatning fyrir aðrar siðmentaðar þjóðir að gera slíkt hið sama.
![]() |
Árni Finnsson heiðraður í London |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tenglar
Fyrir sjómenn.
- Veðurspá - Veðurstofan
- Veður og sjólag
- Atlantshafsspá
- Belgingur
- Ventusky.com
- Flóðatafla Reykjavík
- Heimsmarkaðsverð á fiski
- Reiknistofa fiskmarkaða
- Fiskistofa
- Norges Fiskarlag
- Staðsetning skipa
- Landhelgisgæslan
- Hrafnseyri
- Byggðasafn Vestfjarða
- Hús skáldsins
- Sögueyjan Ísland
- Ríkisútvarpið rás 1
- Facebook - Nilli
Bloggvinir
-
Ársæll Níelsson
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Hafdís Ösp
-
Jón Kristjánsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Þórður Sævar Jónsson
-
Lýður Árnason
-
Ólafur Ragnarsson
-
Karl V. Matthíasson
-
Valmundur Valmundsson
-
Árni Gunnarsson
-
Elfar Logi Hannesson
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Kristján H Theódórsson
-
Ívar Pálsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Magnús Jónsson
-
Jens Guð
-
Jón Valur Jensson
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Hörður Halldórsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.4.): 0
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 39
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar