Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007
10.4.2007 | 10:26
Barnaníðingar
Niðurstöður sýna að dæmigerður brotamaður af þessu tagi er ekki til. Margar tegundir þekkjast og gerendur eru alls ekki alltaf fórnarlömb kynferðisofbeldis. Þó hafa rannsóknir sýnt að þeir sem hafa orðið uppvísir að kynferðisbrotum gegn börnum hafa í ríkari mæli verið misnotaðir í æsku en gerendur í nauðgunarmálum (Bolen, 2001).
Einnig sýna rannsóknir að þegar kemur fram á fullorðinsár eiga þolendur kynferðislegs ofbeldis í æsku yfirleitt í meiri erfiðleikum með náin tengsl við maka en þeir sem ekki hafa orðið fyrir slíkri reynslu (Thio, 2004).
Rannsóknir í Bandaríkjunum sýna að allt að 19 prósent kvenna segjast hafa orðið þolendur kynferðisofbeldis í æsku og um 8 prósent drengja (Finkelhor, 1990). Þetta eru háar tölur og sýna að vandinn er víðtækur. Yfirleitt þekkja þolendur gerandann og sjaldan þarf að beita líkamlegu afli til að fremja verknaðinn. Heimildir; vísindavefurinn:
![]() |
Ummæli Sarkozys um barnaníðinga valda uppnámi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2007 | 09:43
Kjöldraga dýrið
![]() |
Mikil viðbrögð við grein háskólaprófessors um sprengjuárás á Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.4.2007 | 09:29
Fjölkvæni
Í 11. grein laganna segir: Eigi má vígja mann sem er í hjúskap. Gilda þessi skilyrði gagnvart öllum þegnum samfélagsins, óháð því í hvaða söfnuði viðkomandi er og hvort hann er skráður í þjóðkirkjuna eða ekki. Gildi ákvæðisins er einnig jafnt hvort sem það er sýslumaður eða prestur sem gefur hjónaefnin saman.
![]() |
Fjölkvæni er ekkert spaug |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.4.2007 | 21:35
Einn góður af barnum
Ómar var á bar og sat að sumbli. Þegar hann var búinn að fá nóg og ætlaði að standa upp af barstólnum datt hann beint á andlitið. Hann reyndi að standa upp, en datt aftur. Þá skreið hann út að hurð. Þar reyndi hann að standa upp og aftur datt hann. Hann skreið út og ákvað að skríða þessa 600 metra heim til sín.
Þar reyndi hann enn eina ferðina að standa upp og enn sama sagan hann datt. Hann skreið upp stigana og skreið svo upp í svefnherbergi og datt beint á andlitið í hjónarúmið og sofnaði. Morguninn eftir vaknaði hann við að konan hans öskraði: Ómar varst á fylliríi eina ferðina enn." Já, sagði hann. Þeir voru að hringja frá barnum, þú gleymdir hjólastólnum aftur."
![]() |
Geimferðalangur kominn til alþjóðlegu geimstöðvarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.4.2007 | 20:34
Afkomandi Jóns Hreggviðssonar
![]() |
Bátur staðinn að meintum ólöglegum veiðum í Faxaflóa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.4.2007 | 17:57
Grágæs

![]() |
Grágæsin SLN komin á varpstöðvarnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2007 | 17:01
Öfugmæli
1. Áliktun; Festa ber núverandi kerfi við stjórn fiskveiða enn frekar í sessi.
2. Ástæðan; Vegna frábærs árángurs undanfarina ára hefur kerfið sannað ágæti sitt.
Athugasemd
Það getur ekki verið að mönnum sé alvara ! Hver skrifaði þetta inn í drög að áliktunum fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins ?
Ekki neinn með fullu viti, svo mikið er víst. Það er eins og að vitstola einstaklingar eða hópar hafi troðið þessari vitleysu inn í drögin, og er svo sem vitað hverjir þeir helst eru.
![]() |
Sjálfstæðisflokkur stefnir að frekari skattalækkunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2007 | 15:19
Heilræðavísur Hallgríms Péturssonar
Ungum er það allra best að óttast Guð, sinn herra, þeim mun viskan veitast mest og virðing aldrei þverra. Hafðu hvorki háð né spott, hugsa um ræðu mína, elska Guð og gerðu gott, geym vel æru þína. Foreldrum þínum þéna af dyggð, það má gæfu veita, varast þeim að veita styggð, viljirðu gott barn heita. Hugsa um það helst og fremst, sem heiðurinn má næra; aldrei sá til æru kemst. sem ekkert gott vill læra. Lærður er í lyndi glaður, lof ber hann hjá þjóðum, hinn er ei nema hálfur maður, sem hafnar siðum góðum. Oft er sá í orðum nýtur, sem iðkar menntun kæra, en þursinn heimskur þegja hlýtur, sem þrjóskast við að læra. Vertu dyggur, trúr og tryggur, tungu geymdu þína, við engan styggur né í orðum hryggur, athuga ræðu mína. Lítillátur, ljúfur og kátur , leik þér ei úr máta; varast spjátur, hæðni, hlátur, heimskir menn sig státa. Víst ávallt þeim vana halt: Vinna, lesa, iðja; umfram allt þó ætíð skalt elska Guð og biðja. |
![]() |
Heiðra skaltu föður þinn og móður viljirðu ná langt í starfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.4.2007 | 13:47
Hæsti skattgreiðandi í fyrra - gjaldþrota í ár
Umboðs- og heildsali nokkur, er var hæsti skattgreiðandi allra einstaklinga á skattskrá Reykjavíkur í fyrra, hefur nú verið úrskurðaður gjaldþrota. Þetta eru mikil ummskipti og snögg. Helztu skattar þessa manns í fyrra voru: tekjuskattur 127 þús. kr., stríðsgróðaskattur 311 þús. kr. og útsvar 50 þús. kr. Skattar námu alls rúmlega hálfri milljón. Nú hefur maðurinn verið úrskurðaður gjaldþrota í miðri stríðsgróðaveltunni.
Anno; 30. janúar 1943.
8.4.2007 | 14:14
Úlfahjarðir Íraks og nazista
Þann 3. september 1939, tæpum 10 klst, eftir að Neville Chamberlain, forætisráðherra Breta, tilkynnti að styrjöld væri hafin, sökkti þýzki kafbáturinn U-30 (kapt; Fritz-Julius Lemp) breska farþegaskipinu S.S Athenia. Af 1400 farþegum, sem margir hverjir voru að flýja styrjöldina í Evrópu, fórust 112, og meðal þeirra voru 28 Bandaríkjamenn.
Kafbátarnir voru búnir bæði fall- og vélbyssum en hættulegustu vopnin voru tundurskeytin sem hægt var að skjóta úr launsátri. Stundum brugðust tundurskeytin, sérstaklega í fyrri hluta stríðsins en þá voru mörg skeyti gölluð og hittu ekki skotmarkið. Kafbátaforingjarnir brugðu því oft á það ráð að ráðast á skip ofansjávar með fallbyssunum. Þessari árásartækni beittu þeir sérstaklega ef þeir hugðust sökkva litlum fiskiskipum.
Kafbátahernaður Þjóðverja var áhrifaríkastur þegar þeir söfnuðust saman í svokallaðar úlfahjarðir (e. wolfpack) og réðust á skipalestir. Undir stjórn reyndra og sókndjarfra kafbátaforingja eins og Erichs Topps og Ottos Kretschmers gátu úlfahjarðirnar tætt í sundur varnir skipalestanna.
Sjálfsmorðsárásir þær sem stundaðar eru hvað grimmast í Írak í dag minna um margt á kafbátahernað Þjóðverja að því leitinu að nær ógerningur virðist vera að verjast þeim og fórnarlömbin oftast óbreyttir borgarar.
![]() |
Páfi segir ekkert jákvætt gerast í Írak |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.4.2007 kl. 11:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Fyrir sjómenn.
- Veðurspá - Veðurstofan
- Veður og sjólag
- Atlantshafsspá
- Belgingur
- Ventusky.com
- Flóðatafla Reykjavík
- Heimsmarkaðsverð á fiski
- Reiknistofa fiskmarkaða
- Fiskistofa
- Norges Fiskarlag
- Staðsetning skipa
- Landhelgisgæslan
- Hrafnseyri
- Byggðasafn Vestfjarða
- Hús skáldsins
- Sögueyjan Ísland
- Ríkisútvarpið rás 1
- Facebook - Nilli
Bloggvinir
-
Ársæll Níelsson
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Hafdís Ösp
-
Jón Kristjánsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Þórður Sævar Jónsson
-
Lýður Árnason
-
Ólafur Ragnarsson
-
Karl V. Matthíasson
-
Valmundur Valmundsson
-
Árni Gunnarsson
-
Elfar Logi Hannesson
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Kristján H Theódórsson
-
Ívar Pálsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Magnús Jónsson
-
Jens Guð
-
Jón Valur Jensson
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Hörður Halldórsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 3
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 45
- Frá upphafi: 764919
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 45
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar