Leita í fréttum mbl.is

Óskapnaður

Þessi hugmynd má aldrei ná fram að ganga. Slík olíuhreinsunarstöð er óskapnaður og algjörlega óásættanlegt fyrirbæri í miðri náttúruperlu Íslands. Legg til að þessi stöð verði reist í Hvalfirði og þá helst neðansjávar. Vestfirðingar ættu allir sem einn maður að hafna þessari hugmynd og krefjast þess af ríkistjórn og Alþingi að nýtingarréttinum á fiskimiðunum verði aftur skilað til Vestfjarða.
mbl.is Olíuhreinsistöð í Dýrafirði stangast á við stefnu Fjórðungsþings Vestfirðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hans Jörgen Hansen

Ekki skil ég hvað þú ert á móti hvalfirði, því það er ótrúleg nátturuperla að mínu mati....

Hans Jörgen Hansen, 24.4.2007 kl. 12:32

2 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Ég hef ekkert á móti Hvalfirði og er sammála þér með náttúruperluna þar. Hvalfjörður er risa stór í samanburði við okkar þröngu firði fyrir vestan.

Níels A. Ársælsson., 24.4.2007 kl. 12:48

3 Smámynd: halkatla

sammála Níels, þetta er weird

halkatla, 24.4.2007 kl. 12:54

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Sammála þér Níels, menn gleyma 0llum náttúruperlum þegar kemur að byggingu svona fyrirtækja.  Sjáðu t.d. á Bíldudal sem er með veðursælustu stöðum á Vestfjörðum.  Þar var plantað niður í miðju þorpinu eitt stykki Kalkþörungaverksmiðja takk og mér skilst að þegar verið var að prufukeyra verksmiðjuna var hávaðinn svo mikill að ekki var hægt að tala saman nem í nokkur hundruð metra fjarlægð.  Hvernig heldur þú að lyktin verði af öllu saman þegar nokkur þúsund tonna haugur af kalþörungi bíður vinnslu í 20-30 stiga hita.  Þetta er svona álíka gáfulegt og setja Olíuhreinsunarstöðina niður í miðbæ Reykjavíkur.

Jakob Falur Kristinsson, 24.4.2007 kl. 18:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband