Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2011

þá verður uppreisn

fiskibatur_1-6.jpg

Það er alveg 100% öruggt í mínum huga að ef kvótakerfinu verður ekki breytt í grundvallaratriðum þá mun það leiða af sér eina alsherjar uppreisn gegn ríkjandi stjórnvöldum og bönkunum.

Ég efast um að Lilja Mósesdóttir geri sér nokkra grein fyrir stöðu mála í þessum efnum frekar en flestu öðru sem hún tjáir sig um í landsmálunum.

Ég ætla rétt að vona að hún hafi rangt fyrir sér eins og oftast.

Auk þess legg ég til að Lilja Mósesdóttir láti nú verða af því að skríða heim í flokkinn sinn til Davíðs Oddsonar og félaga og hætti þar með að koma fram undir fölsku flaggi.


mbl.is Segir breytingar á kvótakerfinu óraunhæfar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorskstofninn að hrynja ?

fiskibatur_1-4.jpg

Kvótakerfið átti að skila okkur 500-550 þúsund tonna jafnstöðuafla þorsks - en er að skila 160 þúsund tonnum. 

Við Kanada austanvert  átti sama uppskrift að skila einni milljón tonna jafnstöðuafla eftir 1990...

en þar hrundi stofninn  árið 1992 eftir 14 ára tilraunastarfsemi með 20% "aflareglu".....

Allt eru þetta staðreyndir um árangur af  þessari tilraunastarfsemi með þeirri andvana fæddu hugmyndafræði sem fiskveiðistjórn hérlendis byggir nú á - stefnu um að svelta smáþorsk til hlýðni við tölfræðilega tilgátu.

fiskibatur_1-5.jpg

Í Barentshafi  hrintu Rússar okinu af sér árið 2000 og þá loksins fór hafið að svara í samræmi við líffræðileg grundvallaratriði - það virðist verða að veiða töluvert mikið til að viðkomandi stofn auki afrakstur...

Reynslan gefur þetta til kynna - þetta er ekki kenning.

Tilgátan sem þvinguð er upp á okkur í dag - það er kenning....  að öllum líkindum - andvana fædd kenning  ef marka má reynslu...

fiskibatur_1-3.jpg

Gagnstæð stefna - friðun við Kanada austanvert virðist hafa leitt af sér að þorskstofninn  þar hrundi við þessa tilraunastarfsemi  - vöxtur hrundi og stofninn féll.

Þyngsti fiskurinn á miðunum við Kanada árið 1993 - var 0,84 kg - 7 ára gamall undirmálsfiskur - elsti og þyngsti þorskurinn á því svæði.

Þorskstofnar við Kanada Austanvert eru staðbundnir sér stofnar a.m.k. 9 sjálfstæðir stofnar - það var sannað með skýrslu Harold Thompson fiskifræðings  árið 1943 en hann hafði merkt þorsk á svæðinu í 10 ár 1930-1940 og gaf skýrslu sína  um staðbundna þorskstofna þarna árið 1943.

fiskibatur_1-2.jpg

Á Íslandi virðast einnig margir og  staðbundnir undirstofnar í þorskstofninum - svo áleitin spurning er hvernig á  beita "20% aflareglu" á marga undirstofna - af handahófi - út í loftið.

Faglegar forsendur fyrir ríkjandi fiskveiðistjórn virðast flestar fengnar með ágiskunum og tilgátum út í loftið. 

Hvernig getur svona lagað endað - nema illa -  þegar grunn forsendan sjálf virðist andvana fædd hugmyndafræði sem sveltir smáfisk og þorskstofninn virðist vera að úrkynjast smá saman - ef grannt er skoðað? 

Grein eftir Kristinn Pétursson.


mbl.is Þorskurinn hefur minna að éta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvótakerfið rannsakað frá 1984

lofoten_2.jpg

Í ljósi umræðunnar um niðurstöður sérfræðinga í skýrslu um hagræn áhrif fyrirhugaðra breytinga á kvótakerfinu ætti ríkisstjórnin að láta þessa sömu aðila semja nýja skýrslu fyrir 1. september nk, um hagræn áhrif kvótakerfisins á sjávarþorpin og íbúanna frá því 1984, um eignaupptöku, atvinnumissis, nauðungarvinnu kvótaleigunar, félagslegar hörmungar, sjálfsvíg, gjaldþrot fjölskyldna og þjónustufyrirtækja tengdum sjávarútvegi og samfélagslegt hrun fjölda sjávarþorpa.

lofoten.jpg

Einnig ætti skýrslan að fjalla um hið gríðarlega brottkast sem viðgengist hefur í kvótakerfinu svo hundruðum þúsundum tonnum nemur og kvótasvindl ýmisa stærstu sjávarútvegsfyrirtækja sem og annara.

norsk_fiskihofn.jpg

Ef þessi atriði verða rannsökuð af hópi sérfræðinga þá er ég langt frá því að vera viss um að sú skýrsla yrði gerð opinber vegna alvarleika innihalds hennar sem gæti varðað við þjóðaröryggi.

Kvótakerfið mundi hrynja til grunna á einni nóttu.

Hætt er við að tugir fyrrum og núverandi þingmanna, ráðherra og fjöldi einstaklinga færu á bak við lás og slá ef lokinu verður lyft af þessari ormagryfju.


mbl.is Óska eftir fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Símahjal LÍÚ og "sérfræðinganna"

fiskimenn

Það merkilega við þessa skýrslu svokallaðs sérfræðingahóps er að niðurstöður hennar eru byggðar á "SÍMAVIÐTÖLUM" við örfáa stjórnendur sjávarútvegsfyrirtækja (LÍÚ) sem eiga allra hagsmuna að gæta í því að kvótakerfið verði áfram óbreytt.

Það er kanski ekki að undra að "ENGINN" virðist þora að setja nafn sitt undir skýrsluna sem má sjá hér á heimasíðu LÍÚ en hana er hvergi annars staðar að finna nema hjá þeim samtökum.

sild_gefin.jpg

Innihaldi skýrslunar er haldið mjög á lofti með fulltingi Páls Magnússonar útvarpstjóra ríkisútvarpsins sem ekki hefur legið á liði sínu enda hafa allir fréttatímar ríkisútvarpsins frá því á hádegi á þjóðhátíðardaginn 17. júní verið uppfullir af allskyns samhengislausum tilvitnunum í skýrsluna og heimskulegum viðtölum við oddvita Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins um innihald hennar.

gott_kast.jpg

Í reynd má segja að útvarp allra landsmanna hafi með þessu háttarlagi sínu ráðist á ríkisstjórn Íslands hvað eftir annað með það eitt að markmiði að fella hana.

Nú er mál að Páll Magnússon verði látinn sæta ábyrgð fyrir heimsku sína og virðingarleysi og hann taki pokann sinn "STRAX".


mbl.is Lagt til að ráðherra rífi frumvarpið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ómerkilegur hræðsluáróður akademískra fáráðnlinga

islenski_faninn_2.jpg

Froðunni úr loftbólu-veðum LÍÚ sem settu íslenzka þjóð á hausinn hefur ekki enn verið tappað úr kvótakerfinu.

Þessum svo kallaða sérfræðingahóp sem er þétt skipaður af akademískum fáráðnlingum á mála hjá LÍÚ og Sjálfstæðisflokknum er fullvel kunnugt um þá staðreynd en samt skal reynt að halda áfram að ljúga að almenningi.

Í Noregi eru varanlegar aflaheimildir metnar af lánastofnunum og Norska ríkinu einungis á 30% af því verði sem íslenzkir banka gera hér á landi.

Þetta er staðreynd þrátt fyrir að íslensk og Norsk sjávarútvegsfyrirtæki selji afurðir sínar á sömu mörkuðum en allt rekstrarumhverfi í Noregi sé miklu betra en á Íslandi.

Það merkilega við þessa skýrslu svokallaðs sérfræðingahóps er að niðurstöður hennar eru byggðar á símaviðtölum við örfáa stjórnendur sjávarútvegsfyrirtækja sem eiga allra hagsmuna að gæta í því að kvótakerfið verði áfram óbreytt.

Það er kanski ekki að undra að "ENGINN" virðist þora að setja nafn sitt undir skýrsluna sem má sjá hér á heimasíðu LÍÚ en hana er hvergi annarstaðar að finna en hjá þeim samtökum enda halda þeir henni mjög á lofti með fulltingi Páls Magnússonar útvarpstjóra á RÚV sem ekki hefur legið á liði sínu og hafa allir fréttatímar ríkisútvarpsins verið uppfullir af allskyns samhengislausum tilvitnunum í skýrsluna.

Í reynd má segja að útvarp allra landsmanna hafi með þessu háttarlagi sínu ráðist á ríkisstjórn Íslands hvað eftir annað með það eitt að markmiði að fella hana.

Nú er mál að Páll Magnússon verði látinn taka pokann sinn.

Hér fyrir neðan er viðhengd skrá frá 2008 sem gerð var af alvöru sérfræðingum í sjávarútvegi og sýnir raunvirði aflaheimilda.


mbl.is Kann að lenda á skattgreiðendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Níðingsverk sem eru Sjálfstæðisflokknum þóknanleg

gamla_kirkjan_a_sto_varfir_i.jpg

Hér fyrr neðan gefur að líta athugasemdir sem tvær ungar konur frá Stöðvarfirði skrifa á blogg Sigurjóns Þórðarsonar fyrrum alþingismanns og formans Frjálslyndaflokksins.

Einar K. Guðfinnsson talar um vitleysisbreytingar á kvótakerfinu en styður heils hugar rústun og eyðingu heilla samfélaga í þeim eina tilgangi að tryggja velferð sína gagnvart LÍÚ og fjárhagslega heilsu Sjálfstæðisflokksins.

Tilvitnanir hér fyrir neðan.

Það er svo til háborinnar skammar hvernig var farið með frystihúsið á Stöðvarfirði.

Það er ótrúlegt hvernig Samherji hefur fengið að ganga hér um landið og rústa heilu byggðarlögunum.

Ég er með myndir innan úr húsinu sem mig blóðlangar til að koma fyrir almannasjónir til að sýna fólki hvernig þetta lið vinnur. Þeir eyðilögðu húsið.

Fríða Einars.

Samherjamenn lofuðu gulli og grænum skógum hér fyrir nokkrum árum og Stöðfirðingar brostu hringinn yfir því að vera svo "heppnir" að fá Samherja í samkrull með okkur hvað fiskvinnsluna varðar..

Framtíðin virtist björt, jafnvel bjartari en oft áður - það voru keyptar nýjar græjur í húsið en svo allt í einu þá rífa þeir vonina úr hjörtum okkar allra - símtalið er komið, Kambaröstin, sem við Stöðfirðingar allir berum afar hlýjar tilfinningar til, hefur verið selt til Afríku,  skipið er á leið í land, veiðarfærum skal hent á bryggjuna og af stað skal haldið strax niður í nýja heimahöfn.

Ég persónulega mun ALDREI fyrirgefa þeim hvernig þeir fóru með yndislegan stað sem fólkið mitt byggir. Þeir eyðilögðu staðinn af þeim fádæma kulda sem einkennir þeirra starfshætti

- þeim er andskotans sama um allt og alla, eina sem þeir hugsa um er þeirra eigið rassgat og hversu miklum peningum þeir geta troðið inná sig, sama hver fórnarkostnaðurinn verður - jafnvel lífsviðurværi tuga manna og kvenna... Bara sviðin jörð eftir bakteríuna Samherja!!!  

Fríða, skora á þig að setja myndir af stað á netið...það má alveg leyfa fólki að sjá hvernig þeir skyldu við húsið!!!

Kristín Hávarðsdóttir.


mbl.is Snúið út úr afstöðu sjálfstæðismanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvótakerfið virðist byggja á andvana fæddri hugmyndafræði

sjómenn við störf

Kvótakerfið átti að skila okkur 500-550 þúsund tonna jafnstöðuafla þorsks - en er að skila 160 þúsund tonnum. 

Við Kanada austanvert  átti sama uppskrift að skila einni milljón tonna jafnstöðuafla eftir 1990...

en þar hrundi stofninn  árið 1992 eftir 14 ára tilraunastarfsemi með 20% "aflareglu".....

Allt eru þetta staðreyndir um árangur af  þessari tilraunastarfsemi með þeirri andvana fæddu hugmyndafræði sem fiskveiðistjórn hérlendis byggir nú á - stefnu um að svelta smáþorsk til hlýðni við tölfræðilega tilgátu.

Í Barentshafi  hrintu Rússar okinu af sér árið 2000 og þá loksins fór hafið að svara í samræmi við líffræðileg grundvallaratriði - það virðist verða að veiða töluvert mikið til að viðkomandi stofn auki afrakstur...

Reynslan gefur þetta til kynna - þetta er ekki kenning.

Tilgátan sem þvinguð er upp á okkur í dag - það er kenning....  að öllum líkindum - andvana fædd kenning  ef marka má reynslu...

Gagnstæð stefna - friðun við Kanada austanvert virðist hafa leitt af sér að þorskstofninn  þar hrundi við þessa tilraunastarfsemi  - vöxtur hrundi og stofninn féll.

Þyngsti fiskurinn á miðunum við Kanada árið 1993 - var 0,84 kg - 7 ára gamall undirmálsfiskur - elsti og þyngsti þorskurinn á því svæði.

Þorskstofnar við Kanada Austanvert eru staðbundnir sér stofnar a.m.k. 9 sjálfstæðir stofnar - það var sannað með skýrslu Harold Thompson fiskifræðings  árið 1943 en hann hafði merkt þorsk á svæðinu í 10 ár 1930-1940 og gaf skýrslu sína  um staðbundna þorskstofna þarna árið 1943.

Á Íslandi virðast einnig margir og  staðbundnir undirstofnar í þorskstofninum - svo áleitin spurning er hvernig á  beita "20% aflareglu" á marga undirstofna - af handahófi - út í loftið.

Faglegar forsendur fyrir ríkjandi fiskveiðistjórn virðast flestar fengnar með ágiskunum og tilgátum út í loftið. 

Hvernig getur svona lagað endað - nema illa -  þegar grunn forsendan sjálf virðist andvana fædd hugmyndafræði sem sveltir smáfisk og þorskstofninn virðist vera að úrkynjast smá saman - ef grannt er skoðað? 

Grein eftir Kristinn Pétursson.


mbl.is „Sagan samofin kvótakerfinu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottrollsveiðar ógna öllu lífríki hafsins við Ísland

Hér fyrir neðan er upptalning á afleiðingum flottrollsveiða við Ísland. Þetta eru nákvæmlega sömu afleiðingar og aðrar þjóðir hafa orðið fyrir vegna flottrollsveiða.

Sjá hér og hér og hér og hér og hér

1. Þorskstofninn í lágmarki árum saman vegna fæðuskorts og sjálfráns.    

2. Nánast allir rækjustofnar uppétnir vegna fæðuskort.

3. Allur hörpudiskstofn dauður vegna næringarskorts og sýkingar.

4. Loðnustofninn í lágmarki vegna gengdarlausrar ofveiði.

5. Karfastofnar í lágmarki.

6. Grálúðustofninn nánast hruninn vegna fæðuskorts.

7. Rauðsprettustofninn í sögulegu lágmarki vegna fæðuskorts.

8. Kolmunannstofninn hrunin vegna gengdarlausrar ofveiði í flottrol.

9. Sandsíli og trönusíli uppétið vegna fæðuskorts.

10. Sjófugl allur í stórkostlegri útrýmingarhættu vegna fæðuskorts.

11. Síldarstofnin hrunin vegna sýkingar.


mbl.is Kreppa í Krýsuvíkurbjargi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komið nóg af bullinu

thoggun_fyrir_kvotakerfi_liu.jpg

Nú ætti það að vera sameiginlegt markmið allrar þjóðarinnar að leggja þessa stofnun sem kallast Hafró niður í núverandi mynd.

Ég held allir hljóti að sjá það núna hverslags þvæla og tilraunastarfsemi fer fram innan veggja þessarar vitleysisstofnunar.


mbl.is Þorskkvóti eykst samkvæmt veiðireglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband