Leita í fréttum mbl.is

Kvótakerfið er ónýtt við stjórn fiskveiða:

Formaður færeysku sóknardaganefndarinnar, Óli Samró, segir að brottkast á fiski af norskum skipum fyrir um tíu milljarða ísl. króna á hverju ári, sé bein afleiðing af kvótakerfinu sem þar er notað til að stýra fiskveiðunum.

 

Í frétt í Sosialurin segir að norskir fiskifræðingar meti það svo að í ár verði 50 til 200 þúsund tonnum af fiski hent í sjóinn og aflaverðmætið nemi um tíu milljörðum íslenskra króna. Kjell Nedreaas hjá stofnstærðardeild norsku hafrannsóknastofnunarinnar segi í samtali við NTB að brottkastið sé svo mikið að það hafi áhrif á kvótaákvarðanir sem eftir eigi að taka.

 

Kvótakerfið virkar ekki. Það veldur því að sjómenn neyðast til að finna leiðir til þess að fá sem mest út úr þeim fisktonnum sem þeim er leyft að veiða. Sókardagakerfið er hins vegar þannig úr garði gert að allur fiskur kemur að landi, segir Samró en hann segir að Norðmenn geti ekki hugsað sér eða viðurkennt að eitthvað sé að kvótakerfinu. Í staðinn reyni þeir að leysa einstök vandamál þegar þau koma upp og sífellt sé verið að lappa upp á kerfið.

-- Það finnst engin lausn á þessu fyrr en menn ráðast að höfuðrót vandans, segir Óli Samró.


mbl.is Smábátaeigendur krefjast endurskoðunar á aðferðafræði Hafró
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Þá færi allur floti Samherja hf, í brotajárn á fyrsta degi !

Níels A. Ársælsson., 12.6.2007 kl. 11:58

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég gef nú ekki mikið fyrir sjómennsku Daða Hjálmarssonar ef hann hefur aldrei séð fiski kastað í sjóinn.  Áhvers konar skipum hefur hann verið? Hins vegar er ég alveg sammála því að við ættum að minnka loðnuveiðar og jafnvel að hætta þeim og veiða hvalina "grimmt" (mín orð um að veiða þá grimmt). Ætið vantar í sjóinn það sjá allir nema fiskifræðingarnir á HAFRÓ.

Jóhann Elíasson, 12.6.2007 kl. 12:16

3 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Tilvitnun í viðtal í Fréttablaðinu 2006:

 

 

 

Jón Eyfjörð Eiríksson er skipstjóri á Sighvati Bjarnasyni VE-81 frá Vestmannaeyjum. Hann hefur ekki farið leynt með þá skoðun sína að flottroll séu varhugaverð veiðarfæri fyrir framtíð loðnustofnsins fyrir þær sakir að aðeins lítill hluti loðnunnar sem verður á vegi trollsins endar í pokanum en allt hitt vellur út um möskvana og því er óvíst hversu mikið af henni fer forgörðum.

Eins segir hann óvíst hvort loðnan þjappi sér saman aftur og haldi stefnu sinni eftir að búið er að ryðjast gegnum göngurnar með flottrollum. Helgi kollegi hans deilir þessari skoðun með Jóni og einnig flestir skipverjar sem blaðamaður ræddi við um borð. Þetta er heit umræða í Eyjum og Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar sem á Sighvat Bjarnason, segir að hann hljóti að hlusta á þessa gagnrýni sjómanna.

Níels A. Ársælsson., 12.6.2007 kl. 12:43

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Hvaða heimska er það Daði, afhverju ertu að henda Háfnum, afþví hann er ekki í kvóta eða hvað...???

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 12.6.2007 kl. 22:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband