Leita í fréttum mbl.is

ER SAMHERJI HF, EKKI GJALDÞROTA ?

Kaup Samherja hf, í FL Group eru mjög athyglisverð í ljósi mjög slæmrar stöðu Samherja hf.

Samherji hf, keypti í nóvember 2007 fyrir um 25 miljarða í FL og Glitni í gegnum Kaldbak hf, og færði í nýstofnað einkahlutarfélag Stím ehf.

Þar mun vanta að minnstakosti 15 miljarða upp á veð, enn menn bera ekki ábyrgð á skuldum einkahlutarfélaga og því getur Samherji hf, enn keypt og sett í enn eitt einkahlutarfélagið.

það er undarlegt í meira lagi að félag sem er í raun gjaldþrota geti gert þetta í skjóli valda sem forráðamenn Samherja hf, hafa tekið sér í krafti ofurskulda.

Er það virkilega svo að ríkistjórn Íslands, Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið ætli bara að sitja aðgerðarlaus og horfa á þessar hraksmánarlegu tilraunir Samherja hf, til að forðast að þurfa að bera ábyrgð eigin fjármálasukki ?


mbl.is Kaldbakur eignast 12,5% í FL Group á genginu 7,28
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það kemur ekki mikið af kommentum á þetta blogg þitt Nilli...?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 8.4.2008 kl. 18:38

2 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Einmitt Hafsteinn.

Hvernig ætli standi á því ?

Níels A. Ársælsson., 8.4.2008 kl. 20:14

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 8.4.2008 kl. 21:01

4 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Ég verð að viðurkenna Níels að það er ekki af áhugaleysi sem ég andvarpa heldur vegna þess hve ótrúlega hve aggressívt þetta fjárfestingaumhverfi og leikmenn þess hafa verið undanfarin ár. Ég fæ einfaldlega æluna í hálsinn að hugsa um ölduniðinn í þessu "blessaða" fjárfestingaumhverfi. Sama hvort menn heita Þorsteinn eða fyrirtækin Samherji eða FL Group.

Anna Karlsdóttir, 8.4.2008 kl. 21:48

5 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Satt segir þú Anna.

Þetta er bara svakalegt hvað sumir komast upp með.

Níels A. Ársælsson., 8.4.2008 kl. 23:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband