Leita í fréttum mbl.is

Tálknfirðingar kváðu niður svona afturgöngu 1696

draugur

Að mínu viti eru þarna á ferðinni afturgengnir Framsóknar-draugar sem líklega heita, Finnur Ingólfsson, Ólafur Ólafsson, Sigurð Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson.

Og ekki er ólíklegt að draugurinn "Glitnisbani" sé að bæra á sér upp úr gröf Samherja !

Þessa drauga þarf að kveða strax niður !

Vek athygli á eftirfarandi frásögn:

Árið 1696 lézt Bjarni Jónsson bóndi á Bakka í Tálknafirði og var hann jarðaður í kirkjugarðinum í Stóra-Laugardal.

Fljótlega eftir að Bjarni var jarðsettur fór að bera á miklum reimleikum á ýmsum bæjum í Tálknafirði. Töldu vitrir menn í Tálknafirði fyrir víst að Bjarni Jónsson hefði gengið aftur og gert fólki þessar ónáðir.

Brugðust Tálknfirðingar hart við og grófu Bjarna upp og veittu honum enn betri yfirsöng. En það kom ekki að haldi og magnaðist afturganga Bjarna til allra muna.

Fóru þá Tálknfirðingar margir saman aftur að gröfinni í annað sinn og grófu Bjarna upp. Varð þeim ærið hverft við í það skipti, því hinn dauði maður var kominn á fjórar fætur í gröfinni.

Þá gripu Tálknfirðingar til gamals ráðs og hjuggu höfuðið af karli og stungu því við þjóin. Við þessa aðgerð brá svo við að Bjarni Jónsson hefur aldrei gert vart við sig síðan.


mbl.is Lífeyrissjóðir skoða Kaupþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll félagi:Gott hjá þér sem endranær.Kvitta hér fyrir mörg innlit.Ávallt kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 13.10.2008 kl. 20:34

2 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Hér verður að tryggja ða þetta lið komi ekki upp aftur.

Hausar við þjó er svosem ekki verri aðgerð en aðrar.

Humm það er, ef viðkomandi er dauður áður en haus er skilinn frá búk. svona skemmtilegra svoleiðis.

fyrrum Vestfjarðaríhald

Bjarni Kjartansson, 14.10.2008 kl. 17:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband