Leita í fréttum mbl.is

Hænsn

Segir sá sem farið hefur fremstur í flokki þeirra sem stútað hafa nánast hverju einu og einasta sjávarþorpi á Íslandi með svikum og undirlægjuhætti !

Segir sá sem markvisst hefur unnið leynt og ljóst að því að koma andstæðingum kvótakerfisins fyrir kattanef og hnept hundruðir fjölskyldna í þrældóm kvótaleigunnar !

Segir sá sem rústað hefur atvinnuháttum, menningu og fjárhag vel flestra sjávarþorpa á Íslandi !

Segir sá sem rústað hefur nánast öllum fiskistofnum í lögsögu Íslands með takmarkalausri græðgi með gengdarlausum veiðum á loðnu, síld og kolmunna í flottroll !

Segir sá sem látið hefur mölva og brjóta niður skipaflota og fiskvinnslustöðvar um allt ísland og kastað hundruðum tonna af fiskvinnsluvélum og búnaði á ruslahauga !

Segir sá sem hefur í yfir tuttugu ár að áliti Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðana markvist brotið mannréttindi á þúsundum Íslendinga !

Segir sá sem að lokum rústaði Glitni og öllu fjármálakerfi íslenzku þjóðarinnar !

Segir sá sem fyrstur allra landníðinga mun fara í svartholið og þaðan til helvítis !


mbl.is Þorsteinn Már: Vill helst sjá skattana fara í heilbrigðiskerfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Hansson

Þetta er syndaregistur í lagi. Væri kannski nær að nota aurinn til að byggja hænsnabúr ... so to speak.

Haraldur Hansson, 30.7.2009 kl. 15:55

2 Smámynd: Sigurbrandur Jakobsson

Vel mælt Nilli

Sigurbrandur Jakobsson, 30.7.2009 kl. 22:04

3 Smámynd: Þórður Már Jónsson

Fyrst Þorsteinn Már fær að setja fram sér óskir um það hvert skattgreiðslur hans fara þá ætla ég að leyfa mér að gera slíkt hið sama:

Ég óska eftir að allar skattgreiðslur mínar það sem ég á eftir ólifað fari í að elta uppi fjármuni sem útrásarvíkingar hafa skotið undan og til þess að fjármagna lögsóknir á hendur þeim.

Þórður Már Jónsson, 30.7.2009 kl. 23:33

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það er nú varla hægt að bæta neinu við þetta registur. Þú þekkir þetta allt Nilli, jafnvel á eigin skinni?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 1.8.2009 kl. 21:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband