Leita í fréttum mbl.is

Er Erlingur dómari mannlegur ?

Erlingur Sigtryggsson (til hægri)

Það er gott að Erlingur dómari er að verða mannlegur.

Batnandi mönnum er best að lifa segir hið fornkveðna.

Það eru ekki mörg ár síðan Erlingur dómari dæmdi undirritaðan í margra mánaða fangelsi og fleiri milljón krónur í sekt og kostnað.

Sakarefnið; fundin sekur um að hafa (hugsanlega / ekki sannað) kastað 53 fiskum í sjóinn.

Líkt og Jón Hreggviðsson húðstrýktur fann sáran til með böðli konungs er hann að kvöldi dags grét af iðrun og kyssti fætur bóndans frá Rein, virði ég Erlingi það til vorkunnar að honum var fyrirskipað af Árna Matthíssen og hans hyski hvernig hann skyldi fella dóminn.

Við munum örlög böðulsins og vonum því að örlög Erlings verði önnur og betri.


mbl.is Skilaði vodkapelanum aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

LÍÚ-mafían kom ekkert að þessu VODKAPELAMÁLI, í því liggur munurinn.

Jóhann Elíasson, 11.9.2009 kl. 12:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband