Leita í fréttum mbl.is

HB-Grandi hf, leystur upp ?

Það er augljóst hvað hér er á ferðinni. Þegar fréttir bárust fyrir fáeinum dögum um að Samherji hf, hafi keypt Engey RE-1, fyrir verð sem 1,8 milljarða yfir markaðsverði skipsins, þá hlaut öllum að verða ljóst í hvað stefndi. Nú er það bara spurningin hvað Samherji hf, fékk undir fyrir þessa 1,8 milljarða yfirborgun. Voru það aflaheimildir, land í Örfirisey fyrir íbúðarbyggð eða hlutabréf í HB-Granda hf ? Það ætti að verða lýðnum ljóst í hvað stefnir með HB-Granda hf. Ætli búið sé að dagsetja niðurrif húsakosts félagsins á Grandagarði ?
mbl.is Kjalar með rúm 33% í HB Granda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Já þetta eru stórtíðindi úr viðskiptaheiminum. Er Kjalar ekki eitt af fyrirtækjum Ólafs Ólafssonar?

Spurning hvort í vændum sé uppgjör milli tveggja andstæðra fjármálafylkinga í samfélaginu.

Á að ráðast á eitt stærsta útgerðarfyrirtæki landsins, leysa það upp og skipta því á milli sín?

Við sem erum smáhluthafar í Granda, þessu vel rekna útgerðarfyrirtæki,  verðum að vona það besta.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 29.3.2007 kl. 14:52

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ef þú skoðar ársreikning Granda hf. og reiknar út verð aflaheimilda þá fæst miklu meiri peningar með því að búta fyrirtækið í sundur og selja hlutina þannig.  Sjálfsagt hefur Samherji fengið hlutabréf í þessu braski og Þorsteinn Már hefur lofað að togararnir yrðu áfram bláir og gerðir út frá Reykjvík sbr. hið fræga mál með Guðbjörgu ÍS.  Ólafur Ólafsson eigandi Kjalar hf. á nóg af peningum enda framsóknarmaður og var í hópi þeirra sem fengu Búnaðarbankan gefins.  Ég öfunda ekki hinn góða dreng Kristján Loftsson að vera komin í félagskap með þessum frekjuhundum. 

Jakob Falur Kristinsson, 29.3.2007 kl. 17:42

3 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Með þessu hyski vill ég segja.

Níels A. Ársælsson., 29.3.2007 kl. 17:46

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

það komst minkur í hænsnakofann, ekkert minna......

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 29.3.2007 kl. 19:22

5 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Já, og við vitum hvað er gert við svoleiðis meindýr.

Níels A. Ársælsson., 29.3.2007 kl. 20:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband