Leita í fréttum mbl.is

Skömmtun á gúmmístígvélum, lok þorskastríða og hátíðaræða sjávarútvegsráðherra

Þann 1. júní 1943, fyrirskipuðu íslenzk stjórnvöld skömmtun á gúmmístígvélum, númer sjö og stærri. Ástæðan var sögð mikill skortur á gúmmíi í heiminum.

Þann 1. júní 1976, lauk formlega síðasta þorskastríðinu með undirritun samninga við Breta þar sem þeir viðurkendu fiskveiðilögsögu Íslands, en hún var færð út í 200 sjómílur þann 15. október 1975. 

Þann 1. júní 2008, flutti sjávarútvegsráðherra hátíðaræðu sjómannadags í Reykjavík og var henni útgvarpað á Rás 1, hjá RUV. Ég hlustaði á ræðu ráðherra og fannst hún góð !

Þið sem haldið að ég hafi dottið á höfuðið megið alveg halda það !


mbl.is Ekki forsendur til að greiða skaðabætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbrandur Jakobsson

Ja ég trúi því allavega að þú hljótir að hafa dottið. Var það nokkuð vont?

Sigurbrandur Jakobsson, 1.6.2008 kl. 19:04

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég hlustaði ekki á ræðu ráðherra, en ég ætla að vona að þú takir gleði þína á ný og það ekki seinna en strax. Annars geta menn fari illa út úr höfuðhöggum...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 1.6.2008 kl. 21:02

3 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Já strákar þetta er alvarlegt mál !

Níels A. Ársælsson., 1.6.2008 kl. 23:29

4 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Þetta hefur verið rosalegt högg maður...

Hallgrímur Guðmundsson, 1.6.2008 kl. 23:57

5 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

Elsku kallinn minn!

Alltaf trúir þú á hið góða í mönnum og alltaf ert þú tilbúinn til að trúa að mönnum gangi gott eitt til.

Enn nú er þó svo komið að mér þykir vinur minn farinn að guðlasta helst til gróflega og verð ég að viðurkenna að ég hef nokkrar áhyggjur af málinu og réttast væri að ég kæmi vestur á Tálknafjörð að mæla þig

Aðalheiður Ámundadóttir, 2.6.2008 kl. 09:56

6 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það liggur greinilega mikið við að greina hvað er hægt að gera. Þannig að ég tel að það þoli ekki mikla bið að athuga hitastigið. Það er spurning með að finna honum galdramann eða einhvern kuklara þarna fyrir vestan, nóg er af þeim, spurning með að taka honum blóð líka?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 2.6.2008 kl. 20:05

7 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Jæja Alla og Hafsteinn og allir hinir.

Ég var farinn að hafa svo miklar áhyggjur af comentleysinu við færslunar mínar að ég greip til örþrifaráða í von um að einhverjir rumskuðu við sér.

Níels A. Ársælsson., 2.6.2008 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband