Leita í fréttum mbl.is

Minni Vestfjarða

badsvik1

Sú var tíð að sjávarþorpin á vestfjörðum voru eins og blóm í eggi. Iðandi mannlíf, menning og sagan út um allt.

Eins og segir í sögu Hrafna flóka. "smjör draup af hverju strái" eilíft vor í lofti og bjartsýnin réð ríkjum hjá hverri sálu.

Fólkið sem bjó í þorpunum byggði sér bæi, skóla, bryggjur, flugvelli og vegir voru lagðir. Útvegsbændur byggðu sér öflug skip og fiskhús af flottustu hönnun þess tíma.

Fræknustu sjómenn og fengsælustu skipstjórar við N Atlandshaf mönnuðu flota vestfirðinga sem var sá öflugasti og best búni í víðri veröld. Valinn maður í hverju rúmi.

Harðduglegir íbúar þorpana höfðu nóg að bíta og brenna og atvinnan var meiri en næg fyrir alla.

við bryggju

Erlendir sem íslenzkir farandverkamenn komu í þorpin til að aðstoða heimamenn við að gera verðmæti úr öllum þeim afla sem barst að landi.

Frystihús, salthús, skreiðarhús, fiskimjölsverksmiðjur og lýsisbræðslur voru í hverju þorpi sem möluðu samfélaginu og eigendum sínum gull allt árið.

Peningarnir flóðu frá útlöndum líkt og í lækjum og hagsældin í þorpunum var mikil.

Árið var 1983: Fiskifræðingar og stjórnmálamenn fundu það út að þorskstofninn við Ísland væri ofveiddur.

Þetta sama ár var komið á kvótakeffi við stjórn fiskveiða. Vestfirðingar vöruðu við slíkum bölsýnis spám og töldu að um náttúrlega niðursveiflu væri að ræða.

þurkað upp

Vestfirðingar vöruðu við markaðsdrifnu kvótakerfi í fiskveiðum og að sjávarþorpin við Ísland gætu nánast þurkast út þar sem fiskveiðiheimildirnar færðust á hendur örfárra braskara sem gerðu sér sjómennina að þrælum og leiguliðum.Árið er 2009.

Sjávarþorpin á Vestfjörðum og víðast hvar á landinu eru eins og eyðibýli. Skipin upp höggvin, brend, sökt, eða þeim hreinlega verið stolið eins og mörg dæmin sanna.

um borð

Tilvitnun í Íslandsljóð Einars Benediktsonnar.

Þú fólk með eymd í arf !

Snautt og þyrst við gnóttir lífsins linda,

litla þjóð, sem geldur stórra synda.

Tilvitnun lýkur.

á veiðum

Örfá sjávarútvegsfyrirtæki eru eftir á Vestfjörðum, nánast allur flotinn er farinn.

Stór hluti af íbúunum er flúin eða við það að flýja.

Þeir sem fara og eru farnir eru flest allir meira og minna gjaldþrota og eignarlausir.

bundinn

Þeir sem eftir hokra verða að sætta sig við sjálfskipuð yfirvöld þorpanna sem haga sér flest líkt og Jóhann Bogesen stórversír á Óseyri við Axafjörð forðum daga í söguni Sölku Völku.

Það er komið meira en nóg af ofbeldi sem íslenzk stjórnvöld hafa farið fram með gegn íbúunum í sjávarþorpum vestfjarða.

Það verður aldrei sátt né friður á meðan ekki verður snúið til réttlætis og fiskveiði auðlindinni aftur skilað. 


mbl.is Áhöfn Baldurs sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

keyptuð of stóra báta, sem gerðir voru út of langt frá útfluttningshöfn. síðan voru egginn sett í eina eða tvær körfur og vonað það besta. 2 frystitogarar í einu litlu byggðarlagi upp á ekki 400 manns. það þrýfst engin önnur atvinna í slíku plássi.

afhverju var þróunin svona á vestfjörðum á meðan hún var þveröfug á snæfellsnesi? þar stendur allt í blóma og útgerðinar gera út af kappi stórar sem smáar. jú menn eru skuldugir en hver skuldar ekki í dag? stórahöggið á snæfellsnesi var þegar Már var seldur úr Ólafsvík. Már var togari. allir hinir voru á smábátum og uppi dagróðrabáta og eitthvað aðeins stærra. 

hver er sinn gæfu smiður. það er ekki hægt að kenna öllum öðrum um sína ógæfu aftur og aftur. 

Fannar frá Rifi, 1.10.2009 kl. 10:06

2 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Fannar minn þú verður að fara að komast út úr þessu Exel hugsun þinni.

Þú ert að segja að Vestfirðingar séu vitleysingar upp til hópa vegna þess að þeir áttu of mörg skip.

Lestu bækurnar hans Jóns Páls Halldórssonar skoðaðu þetta til að byrja með; http://www.bb.is/Pages/106?NewsID=27173

Já það hefur gengið svo vel á Nesinu undir núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi að 8 af hverjum 10 útgerðum eru gjaldþrota og eiga sér enga von jafnvel þótt þorskkvótinn verði aukinn upp í 300 þúsund tonn.

Níels A. Ársælsson., 1.10.2009 kl. 10:53

3 Smámynd: Fannar frá Rifi

Níels. ég er að segja að á Vestfjörðum áttu menn því óláni að fagna að hafa mikla stjórnmálamenn sem sýndu því mikin áhuga að koma alskyns dóti niður í sínum heimabyggðum. togarar voru þar fremstir í vitleysunni.

varðandi hverjir eru gjaldþrota í dag. tæknilega er 80% - 90% af öllum fyrirtækjum og einstaklingum í þessu landi gjaldþrota. það telst vera gjaldþrot þegar þú getur ekki selt allar eigur þínar og borgað upp skuld. hver uppfyllir þá kröfu laganna að geta selt allar eigur og getur borgað upp allar skuldir? ég get það ekki. getur þú það? 

Fannar frá Rifi, 1.10.2009 kl. 21:27

4 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Nei ég get það ekki.

Ég nenni ekki að ræða þetta lengur, þessi umræða öll stappar við sturlun.

Níels A. Ársælsson., 1.10.2009 kl. 23:12

5 Smámynd: L.i.ú.

Skemmtileg lesning Nilli.

Á það þarf líka að líta að í upphafi 9. ártugarins voru stjórnmálamenn meira og minna með puttana í útgerðinni. Pólitískt skipuð bankaráð, allskonar sjóðir til að sækja í og annað eftir því. Það var því ekki svo að í útgerð væu einungis hæfir menn. Skussunum var hiklaust haldið á floti á kostnað hinna. Það er því ekki undarlegt að illa hafi gengið. Á þessum tíma hefði verið gáfulegra að láta þá fara á hausinn sem ekki gátu gert út frekar en að úthluta þeim kvóta til að selja sig út. Hefðu skussarnir verið teknir út er óvíst hvort flotinn hefði talist of stór.

Í dag er mikið talað um offjárfestingu á þessum tíma sem er víst hliðstæð við stöðuna í Færeyjum. En á Íslandi eru menn bara búnir að hagræða og þess vegna skulda þeir bara ca 550 þúsund kúlur.

L.i.ú., 4.10.2009 kl. 14:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband