Leita í fréttum mbl.is

Átumein í líkama mannfélagsins

TCW Pigott

„Auðvaldið, sem lifir á ránglæti, heimsku og yfirgángi, þarf ekki að ætla sér þá dul að kenna oss, upplýstum alþýðumönnum, neinn sannleika.

Þeir sem halda fyrir yður gæðum lífsins og banna yður að vinna nytjar jarðarinnar, það eru fjandmenn Guðs og yðar, og yður ber til þess heilög skylda að útmá þá af ásýnd jarðar.

Þeir eru átumein í líkama mannfélagsins. Þeirra vegna eru börn yðar blóðlaus og mergsogin. Þeir hafa hrifsað brauðið frá munnum barna vorra og rænt síðustu skyrtunni af foreldrum vorum örvasa” Tilvitnun í Alþýðubókina.

Ég vil minna á orð Sverris Hermannssonar sem hann viðhefur í æviminningum sínum „Skuldaskil“ bls 47. Tilvitnun: „Það er mín skoðun að Finnur Ingólfsson sé einn gerspiltasti stjórnmálamaður á Íslandi sem sögur fara af.“


mbl.is SMS skilaboð til Finns birt á Wikileaks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það mætti halda, að félagi Laxness, hafi haft umræddann skítaklepra, Finn Ingólfsson og félaga hans, í huga þegar hann skrifaði þennan texta.

Hvað varðar ummæli Sverris Hermannsonar um gripinn, þá er þar engu orði ofaukið.

Jóhannes Ragnarsson, 4.12.2009 kl. 19:51

2 Smámynd: Rúnar Þór Þórarinsson

Takk fyrir tilvitnunina í Alþýðubókina.

Ég var ekki nema 16 eða 17 ára þegar ég sá í gegnum smeðjulegt glottið á Finni Ingólfs að maðurinn væri stórhættulega spilltur. Gleymi aldrei risastóru kosningaskilti þar sem hann stóð með Steingrími Hermannssyni niðri á Lækjartorgi. Svipurinn var álíka og þessi sem Hannes Smárason getur ekki afmáð af smettinu - Alger fyrirlitning fyrir fólki og skeytingarleysi. Við sjáum hvert þessir menn komu okkur. Fyrir mitt leyti,á þessum tíma gat ég ekki með nokkru móti skilið hvernig nokkrum manni dytti í hug að kjósa þennan mann sem bar skítlegteðli sitt svona utan á sér.

Rúnar Þór Þórarinsson, 4.12.2009 kl. 20:18

3 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Sammála!!!

Þráinn Jökull Elísson, 4.12.2009 kl. 20:21

4 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Finnur er fæddur glæpamaður og krepptur í framan af spillingu.  Hann hefur aldre reynt að fela það heldur frekar an aðrir siðspilltir framsóknarmenn. 

Það er hinsvegar athyglisvert að millistjórnendur bankana skuli ennþá sinna sínum störfum.  Þetta er vanhæft sakafólk upp til hópa með annsi mikið svindl á samviskunni.  Þetta eru samviskulausir mammon dýrkendur sem einungis hugsa um það að skara eld að eigin köku. 

Það þyrfti að hreinsa þetta pakk út úr öllum bönkunum, það gengur bara ekki að reka bankana með vanhæfum glæpamönnum.  Það endar bara með óskökpum.

Guðmundur Pétursson, 5.12.2009 kl. 07:25

5 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

....og Arion er kominn í hendur þeirra sem áttu hann í fyrstu lotu, nú í gegnum vogunarsjóði, sanniði til.... sá á fé sem Finnur, eða þannig...!

Ómar Bjarki Smárason, 6.12.2009 kl. 01:23

6 Smámynd: Árni Þór Björnsson

Það hefur verið á vitorði allra að maðurinn er ekki allur sem hann er séður. Hann hefur forðast viðtöl . En er í mun að láta sjá sig sem mikinn hestamann sbr reið yfir landið á ská frá Langaanesi að Reykjanesskaga. Var því gert afar góð skil í morgunblaðinu og í sjónvarpi ríkisins. Stórt býli hefur risið austan fjalls og ekkert til sparað. En allt er fengið með óheiðarleik, svikum og ódrengilegheit sem svo mjög hefur markað framgöngu hans í íslensku þjóðlífi.

Hér vantar sárlega gapastokk og opinbera hýðingu á Austurvelli . Einnig að réttlætinu verði fullnægt og maðurinn gerður útlægur úr íslensku þjóðfélagi og látin sæta eignaupptöku.

Árni Þór Björnsson, 7.12.2009 kl. 12:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband