Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Íslenzka ríkið fór aldrei að dómi Hæstaréttar

......en fór að kröfu samráðsforstjóra LÍÚ og ýmissa annara aðila, eins og svo kallaðra viðskiptabanka. Íslenzka ríkið og þar með Alþingi Íslendinga hafa að undirlægi gjörspilltra valdhafa, fótum troðið mannréttindi einstaklinga og rústað sjávarbyggðum landsins.

  

"Í kjölfar dóms hæstaréttar í málinu nr. 145/1998: Valdimar Jóhannesson gegn íslenska ríkinu, sem kveðinn var upp í desember 1998 var sú breyting gerð að allir eigendur haffærra skipa geta fengið almennt veiðileyfi sbr. 4. og 5. gr. laga nr. 38/1990 um stjórn fiskveiða, eins og þeim var breytt með lögum nr. 1/1999".


mbl.is Breytir engu hér á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÍSLANDSLJÓÐ 7-8

Sjá, hin ungborna tíð vekur storma og stríð,

leggur stórhuga dóminn á feðranna verk. –

Heimtar kotungum rétt, - og hin kúgaða stétt

hristir klafann og sér hún er voldug og sterk.

 

Nú er grafinn sá líður frá liðinni tíð,

er sig lægði í duftið og stallana hóf.

Nú er þroskaðri öld eftir glapskulda gjöld,

og það gnötrar frá rótum hið aldraða hróf.

Höfundur; Einar Benediktsson.


mbl.is Útfærsla kvótakerfis gagnrýnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Cato hinn gamli

Grísk áhrif á rómverska menningu voru Cato eitur í beinum. Veldi Karþagó og viðreisn að loknu öðru púnverska stríðinu voru honum einnig þyrnir í augum og lengi lauk hann öllum ræðum sínum í öldungaráði Rómar með orðunum.

„Auk þess legg ég til að Karþagó verði lögð í eyði“.

Cato entist ekki ævin til að sjá Karþagó eytt en undirrituðum hefur nú auðnast að verða vitni af því þegar Sameinuðu þjóðirnar eyddu íslenzka kvótakerfinu.

Ísland þúsund ár.


mbl.is Íslensk stjórnvöld breyti fiskveiðistjórnunarkerfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það ríkir heldur alls engin þjóðarsátt um kvótakerfið

..........og hefur aldrei gert.

En það er í lagi í augum Alþingis enda um að ræða ríka hagsmunagæslu til handa örfáum gráðugum LÍÚ samráðsforstjórum en ekki hagsmuni bláfátæks launafólks í þúsunda tali.

Í mínum augum er hér um alvarlegt athæfi að ræða og vill ég skora á verkalýðsforustuna að semja alls ekki nema til komi hækkun persónuafsláttar.

Eins og Cato hinn gamli hefði sagt; "Auk þess legg ég til að kvótakerfinu verði eytt"


mbl.is Ekki þjóðarsátt um jaðarskatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fiskveiðistjórnunar boðorðin 10.

 

1.       Betri er einn vænn þorskur  í lest en tveir brottkastaðir í hafi.

2.       Betri er einn þorskur óvegin en tveir á hafnarvog.

3.       Betri er einn þorskur sem ýsa en tveir þorskar sem þorskar á hafnarvog.

4.       Betri eru tveir sofandi Fiskistofumenn en einn vakandi á bryggju.

5.       Betri er ein trilla í nausti en tíu frystitogarar í hafi.

6.       Betri eru hundrað tjallar í landhelgi en stjórn LÍÚ á samráðsfundi.

7.       Betri eru tveir Fiskistofumenn í brælu en einn á góðum degi.

8.       Betri eru tveir þorskar tegundatilfærðir en einn á króki.

9.       Betri er einn sofandi fiskifræðingur í vinnunni en tveir að störfum.

10.   Betri er einn Fiskistofustjóri í golfi en tveir í vinnunni.


ÍSLANDSLJÓÐ 6

En, - gáfum gædda þjóð !

Gleymdu ei, hver svefni þeim þig svæfði,

sérhvert lífsmark Ísland deyddi og kæfði,

hungurs ár þín

tjón þitt, tár þín

tíndi í maura sjóð.

Skildu rétt, hvar skórinn að þér kreppir.

Skildu, hver í bönd þig hneppti og hneppir.

Engu að gleyma

í Höfn né heima. –

Heil, mín ættarslóð.

Höfundur; Einar Benediktsson.


Sólarupprisuræða

Þegar konfersráðið kemur ha !

Góðan daginn !

Það er nefnilega það.

Þrjátíu vertíðir á sjó.

Sá sem rær hjá Gúdmúndsen þarf herskip.

 

Eftir þrjátíu vertíðir, góðan daginn:

þú ert sendur heim,

heimí þetta skráþura hreyfingalausa bjakk

sem þeir kalla land

og það er nefnilega það;

 

Höfundur; Halldór Laxnes.


mbl.is Brekkukotsannáll gefinn út á ný í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÍSLANDSLJÓÐ 5

Sjá yfir lög og láð

autt og vanrækt horfir himinsólin.

Hér er víst, þótt löng sé nótt um jólin,

fleira að vinna

en vefa og spinna,

vel ef að er gáð.

Sofið er til fárs og fremstu nauða.

Flý þó ei. Þú svafst þig ei til dauða.

Þeim, sem vilja

vakna og skilja,

vaxa þúsund ráð.

Höfundur; Einar Benediktsson.

ÍSLANDSLJÓÐ 4

Og horfðu heim á bú.

Upp til heiða endalausar beitir,

en til byggða níddar, eyddar sveitir.

Sinumýrar

rotnar rýrar

reyta svörlu hjú.

Og svo túnið. – Sérðu í blásnu barði,

bóndi sæll, þar mótar fyrir garði ?

Svona bjó ´ann,

hingað hjó ´ann,

hann, en ekki þú.

 

Höf; Einar Benediktsson.


mbl.is Fjalla um atvinnulíf á svæðum með lítinn hagvöxt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsta flugið

Árið 1890 smíðaði franski verkfræðingurinn Clément Ader vél sem flaug 50 metra fyrir eigin vélarafli en henni var ekki hægt að stýra.

Bræðurnir Orwille (1871-1948) og Wilbur Wright (1867-1912) eru hins vegar þekktastir fyrir fyrsta heppnaða flug sem knúið var áfram af hreyfli og hægt var að stýra að einhverju marki. Þeir settu sprengihreyfil í ákveðna gerð af flugvél sem kallast tvíþekja. Fyrsta flug Wright-bræðra var 17. desember 1903.

Í fyrsta fluginu fór vélin 40 m á 12 sekúndum og var hraðinn um 11 km á klukkustund miðað við jörð. Wright-bræður framleiddu einnig reiðhjól en hreyfilinn sem þeir notuðu í flugvélina smíðuðu þeir á reiðhjólaverkstæði sínu.

Heimild; Uppfinningabókin. Björn Jónsson þýddi. Fyrsta flugið, Örn og Örlygur 1990.


mbl.is Metár hjá Boeing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband